Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mán 18. apríl 2016 15:47
Magnús Már Einarsson
Vardy ákærður - Líklega í lengra bann
Vardy labbar af velli í gær.
Vardy labbar af velli í gær.
Mynd: Getty Images
Jamie Vardy, framherji Leicester, hefur verið ákærður af enska knattspyrnusambandinu.

Vardy fékk rauða spjaldið gegn West Ham í gær eftir að hafa fengið tvö gul spjöld og ætti samkvæmt því að fara í eins leiks bann.

Nú eru líkur á því að bannið verði lengra því Vardy hefur verið ákærður fyrir að láta dómarann Jon Moss heyra það eftir að rauða spjaldið fór á loft.

Leicester fékk einnig ákæru frá enska knattspyrnusambandinu í dag fyrir slæma hegðun leikmanna eftir að Moss dæmdi umdeilda vítaspyrnu á 83. mínútu.

Topplið Leicester mætir Swansea um næstu helgi en um aðra helgi fer liðið í heimsókn til Manchester United.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner