Svíþjóð mætir Suður-Kóreu í fyrsta leik dagsins á Heimsmeistaramótinu og hafa byrjunarlið beggja liða verið staðfest.
Leikurinn er afar mikilvægur fyrir bæði lið sem eru í erfiðum riðli með Þýskalandi og Mexíkó. Þrjú stig í dag eru því ótrúlega mikilvæg.
Marcus Berg og Ova Toivonen leiða sókn Svía, með Emil Forsberg og Viktor Claesson sér til aðstoðar.
Victor Lindelöf, varnarmaður Manchester United, er ekki með Svíum í dag vegna veikinda.
Heung-min Son, leikmaður Tottenham, er í byrjunarliði Kóreu ásamt fyrirliðanum Sung-yueng Ki, leikmanni Swansea.
Svíþjóð: Olsen, Lustig, Granqvist, Augustinsson, Jansson, Larsson, Ekdal, Forsberg, Claesson, Berg, Toivonen
Suður-Kórea: Jo, Lee, Park, Kim, Jang, Koo, Ki, Lee, Son, Kim, Hwang
Athugasemdir