Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   þri 18. október 2016 10:29
Elvar Geir Magnússon
Hávær kynlífshljóð í Pogba héldu fólki vakandi
Pogba og Dencia.
Pogba og Dencia.
Mynd: 101 Great goals
Enska götublaðið The Sun fer aðrar leiðir í sínum umfjöllunum en flestir aðrir fjölmiðlar.

Í blaðinu í morgun fjalla þeir um Paul Pogba, leikmann Manchester United, og segja að hann sé ekki góður nágranni.

Pogba hefur búið á Lowry hótelinu í Manchester síðan hann kom frá Tórínó í sumar.

Sagt er að nágrannar hans á hótelinu hafi kvartað yfir háværum kynlífshljóðum úr herbergi Pogba. Sagt er að leikmaðurinn sé að hitta afríska söngkonu sem kallast Dencia.

Hafa óhljóðin haldið vöku fyrir gestum hótelsins um miðjar nætur.

Að sjálfsögðu vitnar The Sun í ónafngreindan heimildarmann.

Pogba hefur fengið talsverða gagnrýni í upphafi tímabilsins en hann hefur ekki þótt sýna sínar bestu hliðar með Manchester United hingað til.
Athugasemdir
banner
banner