Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mið 18. október 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Njósnari Barcelona fylgdist með Koulibaly
Mynd: Getty Images
Katalóníustórveldið Barcelona ætlar að versla í janúar. Þeir eiga enn afgang frá félagaskiptum Neymar til Paris Saint-Germain.

Börsungar ætla að gera aðra tilraun í Philippe Coutinho, leikmann Liverpool. Þeir reyndu að kaupa hann í sumar án árangurs.

Barcelona vill líka styrkja vörn sína og þar er Kalidou Koulibaly, varnarmaður Napoli, efstur á óskalistanum.

Samkvæmt frétt Mundo Deportivo hefur Barcelona fylgst vel með honum. Barcelona sendi njósnara á leik Napoli gegn Roma um síðastliðna helgi, en Napoli vann leikinn og hélt hreinu.

Koulibaly hefur lengi verið orðaður við Chelsea, en nú gæti farið svo að hann endi í sólinni í Katalóníu.
Athugasemdir
banner
banner
banner