Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fim 18. desember 2014 22:52
Daníel Freyr Jónsson
Spánn: Athletic og Malaga áfram í bikarnum
Roque Santa Cruz skoraði tvö fyrir Malaga.
Roque Santa Cruz skoraði tvö fyrir Malaga.
Mynd: Getty Images
Athletic Bilbao og Malaga eru komin áfram í 16-liða úrslit spænska konungsbikarsins eftir að hafa lagt andstæðinga sína að velli í kvöld.

Bilbæingar tóku á móti Alcoyano á heimavelli og unnu 1-0 sigur þar sem Borja Viguera skoraði eina mark leiksins seint í fyrri hálfleik. Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli og fór Athletic því áfram 2-1 samanlagt.

Þá átti Malaga ekki í neinum vandræðum með Deportivo La Coruna á heimavelli og vann auðveldan 4-1 sigur. Roque Santa Cruz skoraði tvö fyrir Malaga, auk þess sem Recio og Ignacio Camacho skoruðu sitt markið hvor. Helder Postiga gerði mark gestanna.

Athletic Bilbao 1 - 0 Alcoyano
1-0 Borja Viguera ('39)

Malaga 4 - 1 Deportivo
1-0 Roque Santa Cruz ('51)
1-1 Helder Postiga ('57)
2-1 Recio ('59)
3-1 Roque Santa Cruz ('68)
4-1 Ignacio Camacho ('90)
Athugasemdir
banner
banner