Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   lau 23. apríl 2016 13:46
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Alfreð gerði sneggsta mark í sögu Augsburg
Mynd: Getty Images
Alfreð Finnbogason er búinn að koma Augsburg yfir gegn Wolfsburg í þýska boltanum. Hægt er að sjá markið á vefsíðu Vísis.

Viðureignin er gífurlega mikilvæg fyrir Alfreð og félaga sem eru búnir að vinna tvo leiki í röð og geta komið sér fimm stigum frá fallsæti með sigri í dag.

Alfreð gerði sigurmarkið í síðasta leik gegn Stuttgart auk þess að gera jöfnunarmark í sigrinum á Werder Bremen fyrir tveimur vikum.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá mark Alfreðs, en þetta er sneggsta mark sem nokkur maður hefur skorað fyrir Augsburg í efstu deild í Þýskalandi. Það tók Alfreð 47 sekúndur að skora.



Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner