,,Mér fannst fyrri hálfleikur mjög illa spilaður af okkar hálfu, frá A-Ö. Það sáu það allir sem voru á vellinum," sagði Þórður Þórðarson þjálfari kvennaliðs ÍA eftir 4-1 tap gegn Aftureldingu í kvöld.
Lestu um leikinn: Afturelding 4 - 1 ÍA
Staðan var 3-0 í hálfleik en ÍA minnkaði muninn í byrjun síðari hálfleiks. Þær urðu svo manni færri þegar Ingunn Dögg Eiríksdóttir fékk að líta rauða spjaldið fyrir að tækla Mist Elíasdóttur markvörð ÍA.
,,Liðið var sundurslitið og mikið um feilsendingar og því fór sem fór. 3-0 í hálfleik og það var erfitt að ætla að vinna það upp en við fórum inn í seinni hálfleikinn með því að setja hápressu og vinna boltann strax af þeim í kringum teiginn. Það tókst vel fyrstu tíu mínúturnar. Við skoruðum gott mark og fengum nokkra góða skotsénsa. Svo kemur Ingunn með þessa glæfratæklingu á markmanninn og það fór með leikinn fyrir okkur. Afturelding var heppið að Ingunn gerði þetta því ég held að við hefðum tekið leikinn. Mist er virkilega seig en það gera allir mistök og hún lærir af því," sagði Þórður.
Halla Margrét Hinriksdóttir varði mark ÍA í byrjun móts en hún var á láni frá Breiðabliki. ÍA fékk svo Caitlin Updyke til félagsins og hún tók stöðuna af Höllu Margréti sem gekk aftur til liðs við Breiðablik í dag en Caitlin gerði slæm mistök í marki ÍA í kvöld.
,,Við erum með betri markmann en Höllu Margréti með fullri virðingu fyrir henni. En markmaðurinn átti ekkert sinn besta dag í dag frekar en allar aðrar í liðinu."
Athugasemdir