Næstmarkahæsti maður Leiknis F. í fyrra er genginn til liðs við Mosfellinga
Spænski sóknarmaðurinn Fernando Garcia Castellanos, sem lék með Leikni Fáskrúðsfirði í 2. deildinni í fyrra, er búinn að semja við Aftureldingu.
Fernando, betur þekktur sem Ferran, gerði tíu mörk fyrir Leikni síðasta sumar og var í lykilhlutverki er Leiknismenn tryggðu sig upp í 1. deildina.
Fernando, betur þekktur sem Ferran, gerði tíu mörk fyrir Leikni síðasta sumar og var í lykilhlutverki er Leiknismenn tryggðu sig upp í 1. deildina.
Ferran var auk þess valinn í lið ársins í vali fyrirliða og þjálfara í 2. deild á lokahófi Fótbolta.net.
„Afturelding býður Ferran hjartanlega velkominn til félagsins og bindur miklar vonir við framlag hans í sumar," stendur í fréttatilkynningu frá Aftureldingu.
Afturelding leikur í 2. deildinni í sumar líkt og í fyrra þegar félagið endaði um miðja deild, með 32 stig.
Athugasemdir