Seinni leikur Inter og Stjörnunnar fer fram á Giuseppe Meazza leikvangnum í Mílanó annað kvöld. Fjölmiðlar ytra segja að Walter Mazzarri muni hvíla lykilmenn Inter í leiknum eftir öruggan 3-0 sigur í útileiknum á Laugardalsvelli.
Leikurinn annað kvöld verður aðeins þremur dögum áður en Inter mætir Torino í fyrsta leik sínum í ítölsku A-deildinni þetta tímabilið og þar sem Inter er komið með níu tær í riðlakeppni Evrópudeildarinnar er tækifæri til að gefa varamönnum leik til að sanna sig.
Pablo Daniel Osvaldo kom inn sem varamaður í seinni hálfleik í fyrri leiknum en hann mun að öllum líkindum fá tækifæri í fremstu víglínu.
Þá mun miðvörðurinn Marco Andreolli, fyrrum leikmaður Chievo, fá tækifærið í hjarta varnarinnar.
„Þeir segja okkur að það verði á bilinu 40-50 þúsund manns á leiknum enda er þetta fyrsti keppnisleikur liðsins á heimavelli á tímabilinu og stuðningsmenn liðsins vilja eðlilega sjá nýju mennina sem eru komnir til félagsins,“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, í viðtali á mbl.is.
Athugasemdir