Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fim 30. mars 2017 17:30
Magnús Már Einarsson
Alfreð gæti byrjað gegn Bayern
Alfreð fagnar marki með Augsburg.
Alfreð fagnar marki með Augsburg.
Mynd: Getty Images
Alfreð Finnbogason snýr líklega aftur í lið Augsburg um helgina eftir að hafa ekki spilað leik með liðinu í þýsku Bundesligunni síðan í október. Alfreð hefur verið frá keppni undanfarna mánuði vegna nárameiðsla.

„Hann hefur náð góðri bætingu og hann verður í hópnum eða jafnvel í byrjunarliðinu gegn Bayern," sagði Manuel Baum, þjálfari Augsburg, á fréttamannafundi í dag en Augsburg mætir toppliði Bayern á laugardag.

Í síðustu viku sneri Alfreð aftur á fótboltavöllinn með Augsburg en hann skoraði þá í æfingaleik með liðinu. Alfreð varð einnig faðir í fyrsta skipti í síðustu viku.

„Þetta var mjög góð vika fyrir mig og mína fjölskyldu; maður gengur um á skýjum hérna," sagði Alfreð í útvarpsþættinum Fótbolti.net um síðustu helgi.

Smelltu hér til að hlusta á viðtalið við Alfreð í útvarpsþættinum

Athugasemdir
banner
banner
banner