Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24403 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR27.01.2025, 17:00

Jota aftur til Celtic og Kyogo farinn í Rennes (Staðfest)

Celtic hefur endurheimt Jota en hann yfirgaf félagið 2025. Honum tókst ekki að festa sig í sessi hjá Al-Ittihad í Sádi-Arabíu og ekki heldur hjá Rennes í Frakklandi. Þessi 25 ára portúgalski vængmaður er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Celtic og hefur skrifað undir fimm og hálfs árs samning við Skotlandsmeistarana.

FRÉTTIR27.01.2025, 16:30

Christian McFarlane í Man City (Staðfest)

Englandsmeistarar Manchester City hafa fest kaup á bandaríska varnarmanninum Christian McFarlane. Hann kemur til Man City frá systurfélaginu New York City FC.

FRÉTTIR27.01.2025, 13:00

Danilo riftir samningi við Juventus (Staðfest)

Brasilíski varnarmaðurinn Danilo hefur rift samingi sínum við Juventus en félagið staðfestir þetta í dag. Hann var um tíma fyrirliði Juventus. Danilo spilaði 213 leiki fyrir Juventus á fimm og hálfu ári, og skoraði hann níu mörk. Hann vann ítölsku úrvalsdeildina einu sinni, ítalska ofurbikarinn einu sinni og ítölsku bikarkeppnina tvisvar.

FRÉTTIR25.01.2025, 13:00

Jakobína í Stjörnuna (Staðfest)

Stjarnan hefur fengið Jakobínu Hjörvarsdóttur á láni frá Breiðabliki út tímabilið en félögin tilkynntu skiptin í dag.

FRÉTTIR24.01.2025, 15:00

Kayode til Brentford (Staðfest)

Hægri bakvörðurinn Michael Kayode er kominn til Brentford á láni frá Fiorentina. Brentford er með klásúlu um að grta keypt hann í sumar. Kayode er tvítugur og hefur leikið 49 leiki fyrir Fiorentina síðan hann kom frá Gozzano 2021. Hann er U21 landsliðsmaður Ítalíu en þetta hefur Thomas Frank að segja um nýja leikmanninn sinn:

FRÉTTIR24.01.2025, 12:22

ÍBV krækir í serbneskan miðvörð (Staðfest)

ÍBV tilkynnti í dag að Jovan Mitrovic væri genginn í raðir félagsins. Hann kemur til Vestmannaeyja frá serbneska liðinu FK Indija þar sem hann hefur verið síðasta eina og hálfa árið og spilað í næst efstu deild Serbíu. Jovan er 23 ára en fagnar reyndar 24 ára afmælisdegi sínum á morgun.

FRÉTTIR24.01.2025, 10:40

Róbert Frosti til GAIS (Staðfest) - „Ég kem síðan til baka að láta hinn drauminn rætast"

Stjarnan tilkynnti rétt í þessu að félagið væri búið að ná samkomulagi um sölu á Róberti Frosta Þoreklssyni til sænska félagsins GAIS. Hann skrifar undir fimm ára samning í Gautaborg. Róbert Frosti er 19 ára miðjumaður sem lék í nóvember sinn fyrsta leik með U21 landsliðinu. Hann kom við sögu í öllum 27 leikjum Stjörnunnar í Bestu deildinni á síðasta tímabili, skoraði tvö mörk og lagði upp fimm. GAIS endaði í sjötta sæti Allsvenskan á síðasta tímabili.

FRÉTTIR24.01.2025, 10:03

Rudi Garcia nýr landsliðsþjálfari Belgíu (Staðfest)

Frakkinn Rudi Garcia hefur verið ráðinn nýr landsliðsþjálfari Belgíu. Þessi 60 ára gamli þjálfari tekur við af Domenico Tedesco sem var rekinn á dögunum. Garcia stýrði síðast ítalska liðinu Napoli en var rekinn eftir aðeins sextán leiki við stjórnvölinn 2023.

FRÉTTIR24.01.2025, 06:00

Spænskur miðjumaður til Fram (Staðfest) - Komst í heimsfréttirnar eftir leik gegn Barca

Spænski miðjumaðurinn Isra Garcia er genginn til liðs við Fram. Hann hefur allan sinn feril leikið í heimalandinu. Hann lék síðast með Barbastro í fjórðu efstu deild á Spáni. Hann spilaði með Barbastro sem mætti Barcelona í bikarnum fyrr í þessum mánuði en hann komst í fréttirnar fyrir að biðja kærustu sinnar um að giftast sér eftir leikinn og fékk að sjálfsögðu jákvætt svar.

FRÉTTIR23.01.2025, 14:48

Kolo Muani í Juventus (Staðfest)

Franski sóknarmaðurinn Randal Kolo Muani er genginn í raðir Juventus frá Paris Saint-Germain. Hann kemur á láni til Juventus út tímabilið en það var mikill áhugi á honum í þessum mánuði. Var hann meðal annars orðaður við Tottenham og Manchester United en Juventus vann baráttuna.

FRÉTTIR23.01.2025, 13:30

ÍBV sækir bandarískan varnarmann (Staðfest)

ÍBV tilkynnti í dag að bandaríska fótboltakonan Avery Vander Ven væri búin að skrifa undir samning við félagið. Hún mun spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Vander Ven er 22 ára og hefur leikið með Colorado State Rams og Texas Longhorns í háskólaboltanum síðustu ár.

FRÉTTIR23.01.2025, 13:00

Hanna Kallmaier til Keflavíkur (Staðfest)

Keflavík hefur krækt í Hönnu Kallmaier en hún gengur í raðir félagsins frá FH. Hún skrifar undir tveggja ára samning við Keflavík. Hann er 31 árs miðjumaður sem hefur leikið með ÍBV, Val og FH hér á Íslandi. Hennar fyrsta tímabil var með ÍBV árið 2020 og var hún í þrjú tímabil í Eyjum. Hún gekk í raðir Vals fyrir tímabilið 2023 en lenti í því óláni að meiðast alvarlega í leik snemma sumars. Hún sneri til baka síðasta sumar og náði að spila níu leiki með FH í Bestu deildinni.

FRÉTTIR23.01.2025, 12:30

Enciso lánaður til Ipswich (Staðfest)

Paragvæski landsliðsmaðurinn Julio Enciso hefur skrifað undir samning við Ipswich en hann kemur til félagsins á láni frá Brighton. Sóknarmiðjumaðurinn hefur spilað fyrir Brighton síðan 2022. Hans fyrsti leikur fyrir Ipswich verður á laugardaginn gegn Liverpool. <I>„Ég er svo ánægður með að vera kominn hingað,"</i> segir Enciso við miðla Ipswich. <i>„Ég átti gott spjall við stjórann. Ég er þakklátur fyrir að félagið hafi trú á mér. Ég get ekki beðið eftir því að spila fyrir liðið. Ég er baráttumaður og geri mitt besta í öllum leikjum."</i>

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.