Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24403 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR20.01.2025, 13:57

Sölvi nýr þjálfari Víkings (Staðfest) - Viktor Bjarki og Aron Baldvin aðstoða

Það var að hefjast fréttamannafundur hjá Víkingi þar sem félagið staðfesti ráðningu á Sölva Geir Ottesen sem nýjum þjálfara liðsins, eftir að Arnar Gunnlaugsson tók við íslenska landsliðinu. Viktor Bjarki Arnarsson og Aron Baldvin Þórðarson hafa verið ráðnir hans aðstoðarmenn. Viktor þekkir vel til hjá Víkingi þar sem hann var leikmaður og síðar yfirþjálfari yngri flokka. Hann hefur einnig starfað við þjálfun hjá KR og HK. Aron Baldvin hefur verið þjálfari 2. flokks Víkings og starfað í teymi meistaraflokks þar sem hann hefur verið í leikgreiningu. Hann mun halda áfram að starfa við leikgreiningu í teyminu. Allir skrifuðu undir samninga til þriggja ára en Hajrudin Cardaklija verður áfram markvarðaþjálfari, Kári Sveinsson kemur inn sem styrktarþjálfari í stað Óskars Arnar Haukssonar og Grímur Andri Magnússon kemur nýr inn í teymið sem leikgreinandi.

FRÉTTIR20.01.2025, 12:15

Klara Mist í Þrótt (Staðfest)

Þróttur heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna í sumar því Klara Mist Karlsdóttir er gengin í raðir félagsins en hún kemur frá Fylki. Klara er uppalin hjá Stjörnunni og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með uppeldisfélaginu sumarið 2021. Hún var lánuð til Fylkis sumarið 2022 og seinni hluta sumarsins 2023 áður en hún skipti alfarið til Fylkis. Eftir að Fylkir féll úr Bestu deildinni síðasta haust yfirgaf Klara herbúðir félagsins. Hún var með uppsagnarákvæði í samningi sínum við Fylki sem hún nýtti sér og er nú búin að semja við Þrótt út tímabilið 2027.

FRÉTTIR20.01.2025, 10:38

Beta tekin við Belgíu (Staðfest) - Fjórir íslenskir A-landsliðsþjálfarar

Elísabet Gunnarsdóttir hefur verið ráðin þjálfari belgíska kvennalandsliðsins en þetta var staðfest í morgun. Það eru því fjórir Íslendingar starfandi sem þjálfarar A-landsliða, auk íslensku liðanna þar sem Arnar Gunnlaugsson og Þorsteinn Halldórsson halda um stjórnartaumana er Heimir Hallgrímsson með írska karlalandsliðið. Í tilkynningu frá belgíska sambandinu segir að Elísabet hafi skrifað undir samning til sumarsins 2027 og ferðist til Belgíu í vikunni. Belgía er í 19. sæti styrkleikalista FIFA (Ísland er í fjórtánda sæti) og verður eins og Ísland meðal þátttökuþjóða á EM í sumar. Belgía er með Portúgal, Ítalíu og Spáni í riðli. <i>„Ég hlakka til að þjálfa liðið, sérstaklega þar sem EM er í sjónmáli. Belgía hefur tekið miklum framförum í kvennabolta undanfarin ár og búið er að byggja upp sterkt landslið sem er bæði með reynslumiklum og ungum leikmönnum. Saman getum við náð góðum úrslitum,"</i> segir Elísabet við heimasíðu sambandsins.

FRÉTTIR20.01.2025, 10:23

Eskelinen frá Vestra í finnsku úrvalsdeildina (Staðfest)

William Eskelinen, sem varði mark Vestra á síðasta tímabili, er orðinn leikmaður AC Oulu sem spilar í finnsku úrvalsdeildinni. Eskelinen er 28 ára Svíi sem gekk í raðir Vestra síðasta vetur og átti heilt yfir nokkuð gott tímabil í Bestu deildinni, lék sérstaklega vel eftir að hann var harðlega gagnrýndur af þjálfara sínum í viðtali fyrri hluta móts.

FRÉTTIR19.01.2025, 18:47

Dele Alli orðinn leikmaður Como (Staðfest)

Dele Alli hefur skrifað undir samning við ítalska félagið Como. Samningurinn gildir til ársins 2026 með möguleika á framlengingu um ár til viðbótar.

FRÉTTIR18.01.2025, 06:00

Emilía Lind í HK (Staðfest)

Emilía Lind Atladóttir hefur samið við HK en hún kemur frá Fjölni. Hún skrifaði undir tveggja ára samning.

FRÉTTIR17.01.2025, 20:56

Kvaratskhelia kominn til PSG (Staðfest)

Khvicha Kvaratskhelia er genginn til liðs við PSG frá Napoli en franska liðið borgar um 70 milljónir evra fyrir leikmanninn. Kvaratskhelia skrifar undir samning sem gildir til ársins 2029. Hann fær um 9 milljónir evra í árslaun en hann var að fá um eina og hálfa milljón evra hjá Napoli.

FRÉTTIR17.01.2025, 17:00

Herrera til Boca Juniors (Staðfest)

Ander Herrera, fyrrum miðjumaður PSG og Manchester United, hefur yfirgefið Athletic Bilbao og gengið til liðs við Boca Juniors í Argentínu. Hann rifti samningi sínum við Athletic Bilbao þar sem hann átti sex mánuði eftir. Herrera, sem er 35 ára, lék alls 189 leiki fyrir Bilbæinga alls en hann lék fyrst fyrir félagið 2011–2014. Hann lék fyrir United 2014–2019 og vann FA-bikarinn, deildabikarinn og Evrópudeildina á tíma sínum hjá Rauðu djöflunum. Það hefur ætíð verið draumur hjá Herrera að spila fyrir Boca Juniors á La Bombonera leikvanginum. Þetta er því draumur að rætast fyrir þennan leikreynda miðjumann.

FRÉTTIR17.01.2025, 15:30

Þór/KA fær bandarískan markvörð (Staðfest)

Þór/KA hefur fengið til sín bandarískan markvörð sem kemur frá írska liðinu Galway United en þar hefur hún spilað síðustu tvö tímabil. Jessica Berlin hetir markvörðurinn og er frá Burk í Virginíuríki í Bandaríkjunum. Hún spilaði áður fyrir háskólalið ríkisháskóla Norður-Karólínu.

FRÉTTIR17.01.2025, 13:00

Belgar reka landsliðsþjálfarann sinn (Staðfest)

Domenico Tedesco hefur verið rekinn frá belgíska landsliðinu en hann stýrði liðinu frá febrúar 2023. Hann kom liðinu á EM 2024 en þar gekk liðinu ekkert sérstaklega vel. Það endaði í öðru sæti riðils sem innihélt Úkraínu, Rúmeníu og Slóvakíu. Liðið tapaði svo gegn Frakklandi 1-0 í 16-liða úrslitum.

FRÉTTIR17.01.2025, 12:30

Slegers ráðin hjá Arsenal til frambúðar (Staðfest)

Rene Slegers hefur verið ráðin til að stýra kvennaliði Arsenal til frambúðar eftir gott gengi liðsins meðan hún var bráðabirgðastjóri. Jonas Eidevall lét af störfum í október eftir dapra byrjun á tímabilinu og var Slegers, sem er 35 ára Hollendingur, ráðin til bráðabirgða.

FRÉTTIR17.01.2025, 11:00

Áslaug Dóra er gengin í raðir Víkings (Staðfest)

Varnarmaðurinn Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir er gengin í raðir Víkings og hefur skrifað undir samning til tveggja ára. Hún yfirgaf sænska félagið Örebro í nóvember eftir að liðið féll úr sænsku úrvalsdeildinni. <i>„Við fall félagsins úr deildinni í haust virkjaðist ákvæði um riftun samninga við alla leikmenn og lukkulega fyrir okkur Víkinga er hún nú komin í Hamingjuna,"</i> segir í tilkynningu Víkings. Áslaug fór til Örebro frá uppeldisfélaginu Selfossi þar sem hún varð bikarmeistari. Hún er fædd árið 2003 og á að baki sex leiki með U23 landsliðinu.

FRÉTTIR17.01.2025, 09:06

Haaland skrifar undir svakalegan samning við City (Staðfest)

Manchester City greinir frá því að Erling Haaland hafi skrifað undir svakalegan níu og hálfs árs samning við félagið, samning sem heldur honum því hjá félaginu til 2034. Um er að ræða lengsta samning í ensku úrvalsdeildinni. Öll þau ákvæði sem voru í fyrri samningi norska sóknarmannsins hafa verið fjarlægð samkvæmt enskum fjölmiðlum. Talað er um einn ábatasamasta íþróttasamning sögunnar.

FRÉTTIR16.01.2025, 17:00

Sigurbjörg Diljá í Hauka (Staðfest)

Sigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Hauka. Sigurbjörg, sem spilar að jafnaði sem miðjumaður, er fædd árið 2008 og kemur til Hauka frá Keflavík þar sem hún er uppalin.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.