Fotbolti.net
18.01.25 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Emilía Lind í HK (Staðfest)

Emilía Lind í HK (Staðfest)
Canon

Mynd: HK

Hertz
Emilía Lind Atladóttir hefur samið við HK en hún kemur frá Fjölni. Hún skrifaði undir tveggja ára samning.
Emilía er fædd árið 2006 en hún er uppalin í græna hlutanum í Kópavogi en hún hóf meistaraflokksferilinn með Augnabliki.

Hún er kantmaður en hún spilaði 16 leiki og skoraði átta mörk í 2. deild með Fjölni síðasta sumar.

“Ég er mjög ánægður að Emilía sé búin að semja við HK. Emilía hefur æft með okkur í mestallan vetur og komið ótrúlega vel inn í hópinn. Hún er vinnusöm, metnaðarfull, mikill íþróttamaður og tæknilega góð. Ég er spenntur að vinna með henni áfram og hlakka til að sjá hana á HK treyjunni næsta sumar," sagði Pétur Rögnvaldsson þjálfari HK um Emilíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.