FRÉTTIR15.01.2025, 20:50
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum í kvöld að ráða Arnar Gunnlaugsson sem nýjan landsliðsþjálfara. Þá hefur Víkingur staðfest að félagið hafi samþykkt kauptilboð sambandsins í Arnar.
Í tilkynningu Víkings segir að félagið muni tilkynna um ráðningu nýs aðalþjálfara á næstu dögum en fastlega er búist við því að Sölvi Geir Ottesen, sem var aðstoðarþjálfari Arnars, taki við liðinu.
FRÉTTIR15.01.2025, 19:30
Nýliðar Leicester City hafa gengið frá kaupum á franska hægri bakverðinum Woyo Coulibaly en hann kemur frá ítalska félaginu Parma fyrir 3 milljónir punda.
FRÉTTIR15.01.2025, 17:21
Valur hefur samið við norska miðvörðinn Markus Lund Nakkim. Markus er fæddur árið 1996 og á yfir 100 leiki í efstu deild í Noregi. Síðast lék hann í Bandaríkjunum.
FRÉTTIR15.01.2025, 08:00
Spænska félagið Madrid CFF er búið að ganga frá kaupum á Ásdísi Kareni Halldórsdóttur sem gengur til liðs við félagið úr röðum Lilleström í Noregi.
FRÉTTIR15.01.2025, 07:20
Valur hefur gengið frá kaupum á Arnfríði Auði Arnarsdóttur, einni af allra efnilegustu fótboltastelpum landsins.
FRÉTTIR15.01.2025, 01:14
Hollenska félagið Sparta Rotterdam er búið að tilkynna félagaskipti Nökkva Þeys Þórissonar til félagsins á lánssamningi sem gildir út tímabilið og inniheldur kaupmöguleika.
FRÉTTIR14.01.2025, 18:02
Aston Villa er búið að ganga frá kaupum á Donyell Malen frá Borussia Dortmund.
FRÉTTIR14.01.2025, 17:00
Loris Karius, fyrrum markvörður Liverpool, hefur samið við þýska B-deildarfélagið Schalke út tímabilið.
Karius, sem er 31 árs, hefur verið án félags síðan samningur hans við Newcastle rann út síðasta sumar.
FRÉTTIR14.01.2025, 15:30
Luton Town hefur ráðið Matt Bloomfield sem nýjan stjóra. Bloomfield var stjóri Wycombe Wanderers og hefur nú gert þriggja og hálfs árs samning við Luton.
Bloomfield er 40 ára og kveður Wycombe sem er í baráttu um að komast upp í Champiopnship-deildina.
FRÉTTIR14.01.2025, 13:28
Sóknarmaðurinn Atli Þór Jónasson hefur verið keyptur til Víkings frá HK. Þessi 22 ára leikmaður skoraði sjö mörk í 24 leikjum fyrir HK á síðasta tímabili en Kópavogsliðið féll þá úr Bestu deildinni.
<i>„Atli er gríðarlega spennandi leikmaður með mjög sérstaka kosti og á mikið inni að okkar mati. Hann er enn ungur að árum og afsakið slettuna en Atli hefur alla burði í að verða „unplayable“ vegna styrks síns og hraða. Þrátt fyrir mikla hæð er hann mikill íþróttamaður og ég er gríðarlega spenntur að fá hann í hópinn. Við væntum mikils af honum hér í Víkinni á næstu árum,"</i> segir Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.
Talað hefur verið um að Víkingur greiði um 15 milljónir króna fyrir Atla en ekkert er staðfest í þeim efnum.
Þessi stóri og stæðilegi sóknarmaður er uppalinn hjá Hamri í Hveragerði, en lék í Bestu deildinni tímabilin 2023 og 2024 með HK.
<i>„Í fersku minni er fernan sem hann setti á móti okkur í Bose mótinu seint á síðasta ári,"</i> segir í tilkynningu Víkings.
FRÉTTIR14.01.2025, 10:27
Markvörðurinn Marvin Darri Steinarsson hefur gengið í raðir Gróttu og skrifað undir þriggja ára samning. Grótta féll úr Lengjudeildinni í fyrra og leikur í 2. deild á komandi tímabili.
Marvin lék vel með Vestra þegar liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni árið 2023 og var svo varamarkvörður liðsins í fyrra.
FRÉTTIR14.01.2025, 07:40
Haukar hafa staðfest félagaskipti Ólivers Þorkelssonar til félagsins frá Selfossi.
FRÉTTIR13.01.2025, 23:50
Nuno Espírito Santo þjálfari Nottingham Forest hefur staðfest komu Wayne Hennessey til félagsins.
FRÉTTIR13.01.2025, 23:30
Kólumbíski sóknartengiliðurinn James Rodríguez er búinn að skrifa undir samning við mexíkóska stórliðið Club León.
FRÉTTIR13.01.2025, 21:32
Ívan Óli Santos er kominn aftur heim til uppeldisfélagsins ÍR og gerir hann tveggja ára samning við félagið.
FRÉTTIR13.01.2025, 19:40
Casey Stoney hefur verið ráðin sem nýr landsliðsþjálfari kvennalandsliðs Kanada eftir að hafa stýrt San Diego Wave síðustu þrjú ár.
FRÉTTIR13.01.2025, 19:17
Liverpool hefur ákveðið að senda hægri bakvörðinn Calvin Ramsay á lán til Skotlands út tímabilið eftir að hafa verið hjá Wigan fyrrihluta leiktíðar.
FRÉTTIR13.01.2025, 16:30
Valenica hefur fengið hægri bakvörðinn Max Aarons frá Bournemouth.
Þessi 25 ára leikmaður kemur á lánssamningi sem gildir út tímabilið en Valencia á möguleika á því að kaupa hann alfarið eftir tímabilið.
Aarons, sem er fyrrum leikmaður Bournemouth, hafði færst aftar í goggunarröðinni á Vitality leikvangnum.
Valencia er í neðsta sæti La Liga.
FRÉTTIR13.01.2025, 14:27
Birgir Ómar Hlynsson hefur gengið til liðs við ÍBV á lánssamningi frá Þór á Akureyri.
Samningurinn gildir út komandi keppnistímabil.
FRÉTTIR13.01.2025, 11:29
Eyþór Aron Wöhler hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fylki en Árbæjarliðið féll úr Bestu deildinni í fyrra. Fótbolti.net sagði frá því í síðasta mánuði að Eyþór væri á leið til félagsins.
<i>„Það er okkur Fylkisfólki mikið fagnaðarefni að hafa náð samkomulagi við Eyþór sem við sjáum sem mikilvæga viðbót við öflugan leikmannahóp okkar sem mun gera atlögu að því að komast beint í deild þeirra bestu aftur,"</i> segir í tilkynningu Fylkis.
Eyþór gekk í raðir KR skömmu eftir að tímabilið 2024 hófst en náði ekki að láta ljós sitt skína. Hann spilaði 22 leiki í deild og bikar og skoraði í þeim þrjú mörk og var samningi hans rift eftir tímabilið. Hann er 22 ára sóknarmaður sem uppalinn er hjá Aftureldingu og hefur einnig leikið með Breiðabliki og ÍA.
Eyþór var mjög áberandi á liðnu ári en hann og Kristall Máni Ingason mynda dúettinn Húbbabúbba sem hefur slegið rækilega í gegn með smellum sínum. Eyþór var kynntur hjá Fylki með mjög skemmtilegu myndbandi sem hægt er að sjá hér að neðan.
<i>„Ég er afar sáttur með að ganga í raðir Fylkismanna á þessum tímapunkti. Hér í Árbænum er allt til staðar og ég mun gera allt til þess að standa mig vel í appelsínugulu treyjunni á næstu árum,”</I> er haft eftir Eyþóri í tilkynningu Fylkis.