FRÉTTIR17.12.2024, 15:57
Vestri tilkynnti í dag að Guðmundur Páll Einarsson væri mættur aftur til félagsins eftir eins árs veru í Garðabæ þar sem hann lék með KFG og 2. flokki Stjörnunnar.
Guðmundur er bakvörður sem fæddur er árið 2005 og skrifar undir þriggja ára samning við Vestra.
FRÉTTIR17.12.2024, 12:30
Úkraínski varnarmaðurinn Oleksii Kovtun verður ekki áfram hjá Keflavík en samningur hans við félagið rennur út um áramótin. Hann er að leita sér að nýju félagi.
Kovtun gekk í raðir Keflavíkur fyrir tímabilið 2023 og spilaði 20 leiki í Bestu deildinni í fyrra og 18 leiki af 25 með Keflavík í Lengjudeildinni í sumar. Hann byrjaði alla þrjá leiki í umspilinu þar sem Keflavík tapaði í úrslitum gegn Aftureldingu.
FRÉTTIR16.12.2024, 14:54
Arnlefiur Hjörleifsson er genginn í raðir Njarðvíkur, hann mun leika með liðinu á láni tímabilið 2025 frá ÍA.
Vinstri bakvörðurinn er frá Ólafsvík og hefur leikið með Skallagrími, Kára, Kórdrengjum og ÍA á sínum ferli.
Hann kom við sögu í 12 leikjum í Bestu deildinni í sumar og tímabilið 2023 lék hann 20 leiki í Lengjudeildinni.
FRÉTTIR16.12.2024, 13:36
Unnur Dóra Bergsdóttir er gengin í raðir Þróttar og gerir hún þriggja ára samning við félagið. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var talsverður áhugi á leikmanninum en hún endaði á að semja við Þrótt.
Unnur Dóra hefur verið í lykilhlutverki á Selfossi síðustu ár og var fyrirliði uppeldisfélagsins.
Hún er fædd árið 2000 og á að baki þrjá leiki með íslensku landsliðunum, einn þeirra er skráður A-landsleikur og tveir með U23 landsliðinu. Alls á hún að baki 163 KSÍ leiki og í þeim hefur hún skorað 18 mörk.
FRÉTTIR15.12.2024, 22:57
Russell Martin hefur verið rekinn úr starfi sem stjóri Southampton eftir 5-0 tap liðsins gegn Tottenham í kvöld.
FRÉTTIR15.12.2024, 13:02
Úlfarnir hafa formlega staðfest brottrekstur enska stjórans Gary O'Neil tæpum sólarhring eftir 2-1 tap liðsins gegn nýliðum Ipswich Town.
FRÉTTIR14.12.2024, 20:15
Vestri tilkynnti í dag að félagið hafi bætt við sig reynslumiklum sænskum miðjumanni sem á að styrkja liðið fyrir átökin í Bestu-deildinni á næstu leiktíð.
FRÉTTIR14.12.2024, 20:00
Lengjudeildarlið Þórs á Akureyri tilkynnti í gær að spænski varnarmaðurinn Juan Guardia Hermida sé genginn í raðir félagsins frá nágrönnunum í Völsungi.
FRÉTTIR14.12.2024, 11:28
Varnarmaðurinn Elvar Baldvinson mun ekki leika með Vestra á næsta tímabili en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
FRÉTTIR13.12.2024, 14:00
Fylkir tilkynnti í dag að Orri Sveinn Segatta væri búinn að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við félagið.
Síðustu vikur hefur framtíð Orra verið í óvissu og var hann í síðasta mánuði orðaður í burtu frá félaginu. Hann hefur ákveðið að taka slaginn áfram með uppeldisfélaginu.
FRÉTTIR13.12.2024, 13:38
ÍBV og Víkingur greindu í dag frá því að Bjarki Björn Gunnarsson væri alfarið genginn í raðir ÍBV frá Víkingi en Bjarki lék á láni í Vestmannaeyjum í sumar sem og tímabilið 2023. Hann skrifar undir þriggja ára samning við ÍBV.
<i>„Hann lék 14 leiki fyrir ÍBV í deildinni á árinu og skoraði í þeim 5 mörk en tvö þeirra voru meðal fallegustu marka deildarinnar,"</I> segir í tilkynningu ÍBV. ÍBV vann Lengjudeildina í sumar og verður því í Bestu deildinni á komandi tímabili.
Bjarki er uppalinn hjá Víkingi og lék fjóra meistaraflokksleiki fyrir félagið. Hann hefur undanfarin fimm tímabil verið á láni frá félaginu, fyrst hjá Haukum, svo Þrótti Vogum, næst Kórdrengjum og loks hjá ÍBV í tvö tímabil.
FRÉTTIR13.12.2024, 13:00
Mist Funadóttir er búin að skrifa undir þriggja ára samning við uppeldisfélagið sitt, Þrótt, en hún er snúin aftur til félagsins eftir tvö ár með Fylki.
Mist er vinstri bakvörður, fædd 2003, og á að baki tæplega 70 leiki í efstu tveimur deildum Íslandsmótsins. Fyrr á þessu ári lék hún með U23 landsliði Íslands þegar liðið vann 1-2 sigur á Finnum. Það var hennar fyrsti leikur í íslensku treyjunni.
FRÉTTIR13.12.2024, 07:30
Vestri hefur nælt í Emmanuel Agyeman Duah en hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið.
Duah er 21 árs gamall Ganverji en hann spilar sem kantmaður.
FRÉTTIR12.12.2024, 20:51
Margrét Lea Gísladóttir er gengin til liðs við Stjörnuna frá grönnum sínum í Breiðabliki.
FRÉTTIR12.12.2024, 13:00
Kvennalið KR hefur á síðustu dögum bætt við sig þremur leikmönnum en liðið leikur í Lengjudeildinni á næstu leiktíð eftir að hafa komist upp úr 2. deild kvenna.
FRÉTTIR11.12.2024, 23:55
Þórsarar tilkynntu í kvöld að þrír markverðir væru búnir að skrifa undir samninga við félagið. Tveir þeirra ganga í raðir félagsins en það eru þeir Franko Lalic og Víðir Jökull Valdimarsson.
Franko Lalic er 33 ára Króati sem kemur til Þórs frá Dalvík/Reyni þar sem hann hefur verið undanfarin tvö ár. Þar á undna var hann með Víkingi Ólafsvík og Þrótti Reykjavík og á alls að baki 111 leiki á Íslandi.
<i>„Auk þess að spila mun Franko hafa yfirumsjón með markmannsþjálfun félagsins. Samningurinn er til tveggja ára,"</I> segir í frétt á heimasíðu Þórs.
FRÉTTIR11.12.2024, 18:30
Kvennalið Aftureldingar hefur krækt í tvo leikmenn fyrir komandi átök í Lengjudeildinni á næsta tímabili.
Það eru þær Snædís Logadóttir og Hanna Faith Victoriudóttir. Snædís kemur til Aftureldingar eftir a hafa klárað háskólanám í Bandaríkjunum. Hún er uppalin i Val en hefur einnig spilað fyrir FH og ÍA. Hún er 26 ára miðvörður og lék síðast á Íslandi árið 2019, þá með FH. Hún hefur skorað eitt mark í 19 KSÍ leikjum á sínum ferli.
FRÉTTIR11.12.2024, 17:03
Enska félagið Stockport County hefur staðfest kaup á Benoný Breka Andréssyni frá KR. Benoný skrifar undir þriggja og hálfs árs samning við Stockport. Kaupverðið er óuppgefið.
Benoný er 19 ára og var í sumar markakóngur Bestu deildarinnar þegar hann skoraði 21 mark í 26 leikjum og setti markamet í Bestu deildinni.
Hann er uppalinn hjá Gróttu og Breiðabliki, var fenginn til Bologna árið 2021 þar sem hann var í tvö ár áður en hann sneri heim og samdi við KR. Hann skoraði níu mörk tímabilið 2023 og ríflega tvöfaldaði þann markafjölda í sumar. Benoný er U21 landsliðsmaður og opnaði markareikninginn sinn þar í síðasta mánuði.
Benoný þarf að fá atvinnuleyfi og svo munu félagaskiptin formlega ganga í gegn þegar félagaskiptaglugginn á Englandi opnar þann 1. janúar.
FRÉTTIR11.12.2024, 16:54
Þórsarar hafa krækt í miðjumanninn Ibrahima Balde, mun hann leika með liðinu í Lengjudeildinni á næstu leiktíð.
Balde er 28 ára og hefur leikið með Vestra undanfarin tvö tímabil. Hann hjálpaði Vestra að fara upp úr Lengjudeildinni 2023 og lék svo 23 leiki með liðinu sem hélt sér uppi í Bestu deildinni í sumar. Hann náði ekki samkomulagi við Vestra um nýjan samning en semur á Akureyri.
FRÉTTIR11.12.2024, 13:30
AaB í Álaborg tilkynnti í morgun að félagið hefði fengið norska miðjumanninn Isak Hansen-Aaröen lánaðan út tímabilið.
Hansen-Aaröen kemur frá Werder Bremen en hann var hjá Manchester United í þrjú og hálft ár, án þess að spila fyrir aðallið félagsins.
Hann hefur spilað þrjá leiki fyrir Werder Bremen og er lýst sem sóknarhuguðum miðjumanni með sköpunarmátt.