Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25126 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR15.12.2024, 13:02

Gary O'Neil rekinn frá Wolves (Staðfest)

Úlfarnir hafa formlega staðfest brottrekstur enska stjórans Gary O'Neil tæpum sólarhring eftir 2-1 tap liðsins gegn nýliðum Ipswich Town.

FRÉTTIR14.12.2024, 20:00

Juan Guardia í Þór (Staðfest)

Lengjudeildarlið Þórs á Akureyri tilkynnti í gær að spænski varnarmaðurinn Juan Guardia Hermida sé genginn í raðir félagsins frá nágrönnunum í Völsungi.

FRÉTTIR13.12.2024, 14:00

Orri Sveinn heldur tryggð við uppeldisfélagið (Staðfest)

Fylkir tilkynnti í dag að Orri Sveinn Segatta væri búinn að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Síðustu vikur hefur framtíð Orra verið í óvissu og var hann í síðasta mánuði orðaður í burtu frá félaginu. Hann hefur ákveðið að taka slaginn áfram með uppeldisfélaginu.

FRÉTTIR13.12.2024, 13:38

ÍBV kaupir Bjarka Björn (Staðfest)

ÍBV og Víkingur greindu í dag frá því að Bjarki Björn Gunnarsson væri alfarið genginn í raðir ÍBV frá Víkingi en Bjarki lék á láni í Vestmannaeyjum í sumar sem og tímabilið 2023. Hann skrifar undir þriggja ára samning við ÍBV. <i>&bdquo;Hann lék 14 leiki fyrir ÍBV í deildinni á árinu og skoraði í þeim 5 mörk en tvö þeirra voru meðal fallegustu marka deildarinnar,"</I> segir í tilkynningu ÍBV. ÍBV vann Lengjudeildina í sumar og verður því í Bestu deildinni á komandi tímabili. Bjarki er uppalinn hjá Víkingi og lék fjóra meistaraflokksleiki fyrir félagið. Hann hefur undanfarin fimm tímabil verið á láni frá félaginu, fyrst hjá Haukum, svo Þrótti Vogum, næst Kórdrengjum og loks hjá ÍBV í tvö tímabil.

FRÉTTIR13.12.2024, 13:00

Mist Funadóttir heim í Þrótt (Staðfest)

Mist Funadóttir er búin að skrifa undir þriggja ára samning við uppeldisfélagið sitt, Þrótt, en hún er snúin aftur til félagsins eftir tvö ár með Fylki. Mist er vinstri bakvörður, fædd 2003, og á að baki tæplega 70 leiki í efstu tveimur deildum Íslandsmótsins. Fyrr á þessu ári lék hún með U23 landsliði Íslands þegar liðið vann 1-2 sigur á Finnum. Það var hennar fyrsti leikur í íslensku treyjunni.

FRÉTTIR12.12.2024, 13:00

Þrír leikmenn í KR (Staðfest)

Kvennalið KR hefur á síðustu dögum bætt við sig þremur leikmönnum en liðið leikur í Lengjudeildinni á næstu leiktíð eftir að hafa komist upp úr 2. deild kvenna.

FRÉTTIR11.12.2024, 23:55

Þórsarar sækja tvo markverði og Aron Birkir framlengir (Staðfest)

Þórsarar tilkynntu í kvöld að þrír markverðir væru búnir að skrifa undir samninga við félagið. Tveir þeirra ganga í raðir félagsins en það eru þeir Franko Lalic og Víðir Jökull Valdimarsson. Franko Lalic er 33 ára Króati sem kemur til Þórs frá Dalvík/Reyni þar sem hann hefur verið undanfarin tvö ár. Þar á undna var hann með Víkingi Ólafsvík og Þrótti Reykjavík og á alls að baki 111 leiki á Íslandi. <i>„Auk þess að spila mun Franko hafa yfirumsjón með markmannsþjálfun félagsins. Samningurinn er til tveggja ára,"</I> segir í frétt á heimasíðu Þórs.

FRÉTTIR11.12.2024, 18:30

Hanna Faith og Snædís Logadóttir í Aftureldingu (Staðfest)

Kvennalið Aftureldingar hefur krækt í tvo leikmenn fyrir komandi átök í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Það eru þær Snædís Logadóttir og Hanna Faith Victoriudóttir. Snædís kemur til Aftureldingar eftir a hafa klárað háskólanám í Bandaríkjunum. Hún er uppalin i Val en hefur einnig spilað fyrir FH og ÍA. Hún er 26 ára miðvörður og lék síðast á Íslandi árið 2019, þá með FH. Hún hefur skorað eitt mark í 19 KSÍ leikjum á sínum ferli.

FRÉTTIR11.12.2024, 17:03

Benoný Breki til Stockport (Staðfest)

Enska félagið Stockport County hefur staðfest kaup á Benoný Breka Andréssyni frá KR. Benoný skrifar undir þriggja og hálfs árs samning við Stockport. Kaupverðið er óuppgefið. Benoný er 19 ára og var í sumar markakóngur Bestu deildarinnar þegar hann skoraði 21 mark í 26 leikjum og setti markamet í Bestu deildinni. Hann er uppalinn hjá Gróttu og Breiðabliki, var fenginn til Bologna árið 2021 þar sem hann var í tvö ár áður en hann sneri heim og samdi við KR. Hann skoraði níu mörk tímabilið 2023 og ríflega tvöfaldaði þann markafjölda í sumar. Benoný er U21 landsliðsmaður og opnaði markareikninginn sinn þar í síðasta mánuði. Benoný þarf að fá atvinnuleyfi og svo munu félagaskiptin formlega ganga í gegn þegar félagaskiptaglugginn á Englandi opnar þann 1. janúar.

FRÉTTIR11.12.2024, 16:54

Ibrahima Balde í Þór (Staðfest)

Þórsarar hafa krækt í miðjumanninn Ibrahima Balde, mun hann leika með liðinu í Lengjudeildinni á næstu leiktíð. Balde er 28 ára og hefur leikið með Vestra undanfarin tvö tímabil. Hann hjálpaði Vestra að fara upp úr Lengjudeildinni 2023 og lék svo 23 leiki með liðinu sem hélt sér uppi í Bestu deildinni í sumar. Hann náði ekki samkomulagi við Vestra um nýjan samning en semur á Akureyri.

FRÉTTIR11.12.2024, 13:30

Hansen-Aaröen lánaður til Álaborgar (Staðfest)

AaB í Álaborg tilkynnti í morgun að félagið hefði fengið norska miðjumanninn Isak Hansen-Aaröen lánaðan út tímabilið. Hansen-Aaröen kemur frá Werder Bremen en hann var hjá Manchester United í þrjú og hálft ár, án þess að spila fyrir aðallið félagsins. Hann hefur spilað þrjá leiki fyrir Werder Bremen og er lýst sem sóknarhuguðum miðjumanni með sköpunarmátt.

FRÉTTIR10.12.2024, 17:22

Diego Gomez til Brighton (Staðfest)

Paragvæski landsliðsmaðurinn Diego Gomez verður leikmaður Brighton þegar glugginn opnar þann 1. janúar. Brighton mun fá þennan 21 árs miðjumann frá bandaríska MLS-liðinu Inter Miami þar sem hann var samherji Lionel Messi.

FRÉTTIR10.12.2024, 16:30

Naby Keita til Ungverjalands (Staðfest)

Miðjumaðurinn Naby Keita hefur skrifað undir samning við Ferencvaros í Ungverjalandi. Hann kemur þangað á láni frá Werder Bremen. Keita er aðeins 29 ára gamall og lék fyrir Liverpool í fimm ár áður en hann skipti yfir til Werder Bremen á frjálsri sölu í fyrrasumar.

FRÉTTIR10.12.2024, 13:00

Ariela Lewis alfarið til Keflavíkur (Staðfest)

Keflavík tilkynnti í dag að Ariela Lewis væri búin að skrifa undir samning út tímabilið 2026. Ariela kom til Keflavíkur í sumar á láni frá Aftureldingu og er nú alfarið gengin í raðir félagsins. Hún skoraði tvö mörk í fimm leikjum í Bestu deildinni seinni hluta sumars og hefur alls skorað 38 mörk í 60 leikjum á Íslandi.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.