Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24417 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR23.07.2024, 13:44

Kári Steinn í Leikni (Staðfest)

Leiknir hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni því Kári Steinn Hlífarsson er genginn í raðir félagsins. Samningur hans við Leikni gildir út tímabilið 2025. Hann kemur frá Aftureldingu þar sem hann hefur verið síðan 2019. Hann er uppalinn hjá Breiðabliki en var í tvö ár í Garðabænum áður en hann fór svo í Mosó.

FRÉTTIR23.07.2024, 13:22

Jón Hrafn í Stjörnuna (Staðfest) - Sveinn Gísli á leið aftur í Fylki

Félagaskiptaglugginn er galopinn og félögin í Bestu deildinni að gera breytingar á sínum leikmannahópum. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Stjarnan sett sig í samband við Leikni og hafið viðræður við Jón Hrafn Barkarson leikmann félagsins. Jón Hrafn er tvítugur kantmaður sem uppalinn er hjá Stjörnunni en skipti yfir í Leikni fyrir tímabilið 2021. Hann er byrjunarliðsmaður í liði Leiknis en samningur hans rennur út í lok árs og því mega önnur félög ræða við hann gegn því að láta Leikni fyrst vita. Jón Hrafn hefur einu sinni í sumar verið í liði umferðarinnar í Lengjudeildinni. <b>Uppfært 13:22:</b> Jón Hrafn hefur fengið félagaskipti í Stjörnuna og er kominn með leikheimild. Hann hefur því spilað sinn síðasta leik fyrir Leikni, í bili allavega.

FRÉTTIR23.07.2024, 13:14

Rasmus Christiansen í Gróttu (Staðfest)

Grótta tilkynnti í dag að miðvörðurinn Rasmus Christiansen væri genginn í raðir félagsins. Hann kemur til Gróttu frá ÍBV þar sem hann lék fyrri hluta tímabilsins. <i>„Rasmus er íslensku knattspyrnuáhugafólki að góðu kunnu en hann spilaði fyrst hér á landi árið 2010 og átti farsælan feril með ÍBV, Val og KR í efstu deild og varð m.a. Íslandsmeistari þrívegis. Ásamt því hefur Rasmus spilað með uppeldisfélagi sínu Lyngby in Danmörku, Ull/Kisa í Noregi og svo Fjölni og Aftureldingu í næstefstu deild á Íslandi,"</I> segir í tilkynningu Gróttu.

FRÉTTIR23.07.2024, 09:30

Che Adams til Torino (Staðfest)

Skoski framherjinn Che Adams hefur gengið í raðir ítalska félagsins Torino á frjálsri sölu. Þessi 28 ára leikmaður yfirgaf Southampton í sumar, þegar samningur hans rann út. Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við Torino.

FRÉTTIR23.07.2024, 06:00

Delaney aftur til FCK (Staðfest)

Danska stórveldið FC Kaupmannahöfn er búið að krækja sér í miðjumanninn Thomas Delaney á frjálsri sölu frá spænska félaginu Sevilla.

FRÉTTIR22.07.2024, 14:54

Onana til Aston Villa (Staðfest)

Aston Villa hefur keypt Amadou Onana, miðjumann Everton, fyrir 50 milljónir punda. Þessi 22 ára leikmaður lék allar mínútur Belgíu á EM í Þýskalandi og verður í eldlínunni með Villa í Meistaradeildinni á komandi tímabili.

FRÉTTIR22.07.2024, 06:00

Lamela til AEK í Grikklandi (Staðfest)

Argentínski vængmaðurinn Erik Lamela hefur samið um að leika með gríska liðinu AEK næstu þrjú árin en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í dag.

FRÉTTIR20.07.2024, 16:56

Davíð Ingvars snýr aftur í Breiðablik (Staðfest)

Davíð Ingavarsson hefur skrifað undir samning við Breiðablik út tímabilið 2026. Félagið tilkynnti þetta í dag. Davíð ákvað að reyna fyrir sér á erlendri grundu með Kolding í Danmörku en rifti samningi sínum við félagið og er nú kominn aftur heim. Davíð var svekktur með lítinn spiltíma hjá danska félaginu. Bakvörðurinn kom í Breiðblik frá FH í 3. flokki árið 2015 þá 16 ára gamall og hefur spilað 173 leiki fyrir Breiðablik og skorað í þeim leikjum 4 mörk. Þetta eru frábærar fréttir, Davíð er virkilega öflugur leikmaður og styrkir hópinn vel fyrir komandi átök.

FRÉTTIR20.07.2024, 10:20

María Catharína Gros til Linköping (Staðfest)

María Catharína Ólafsdóttir Gros er gengin til liðs við sænska stórliðið Linköping eftir að hafa verið lykilleikmaður í sterku liði Fortuna Sittard í hollenska boltanum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.