Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24420 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR28.06.2024, 20:32

Ian Maatsen til Aston Villa (Staðfest)

Aston Villa hefur gengið frá kaupum á hollenska vinstri bakverðinum Ian Maatsen fyrir um 37,5 milljónir punda en hann kemur til félagsins frá Chelsea.

FRÉTTIR28.06.2024, 18:03

Joselu til Al-Gharafa (Staðfest)

Spænski sóknarmaðurinn Joselu er genginn til liðs við Al-Gharafa í Katar en hann kemur til félagsins frá Evrópumeisturum Real Madrid.

FRÉTTIR27.06.2024, 17:13

Kristján hættur og Jóhannes Karl tekur við Stjörnunni (Staðfest)

Stjarnan tilkynnti rétt í þessu að breyting hefði verið gerð á þjálfarateymi meistaraflokks kvenna. Kristján Guðmundsson óskaði eftir því að hætta með liðið og við liðinu er tekinn Jóhannes Karl Sigursteinsson. Kristján var á sínu sjötta tímabili með lið Stjörnunnar en gengi liðsins hefur ekki verið gott í byrjun tímabils. Liðið var í baráttu um Evrópusæti í fyrra en missti af því. Í vetur fóru margir lykilleikmenn úr liðinu og er liðið talsvert lakara en á síðasta tímabil. Stjarnan er í 8. sæti deildarinnar með níu stig eftir tíu leiki. Liðið tapaði gegn Víkingi í 10. umferð í gær. Tímabilið 2022 endaði liðið í 2. sæti deildarinnar og fór því í forkeppni Meistaradeildarinnar í fyrra. Jóhannes Karl tekur við liðinu en hann var síðast aðalþjálfari hjá KR tímabilin 2019-2022. Hann hætti hjá KR snemma tímabilsins 2022. Áður hafði hann þjálfað HK/Víking, Breiðablik og Stjörnuna.

FRÉTTIR27.06.2024, 12:30

Lucy Bronze yfirgefur Barcelona (Staðfest)

Lucy Bronze, sem hefur verið einn besti varnarmaður heims síðustu árin, mun yfirgefa Barcelona þegar samningur hennar rennur út á næstu dögum.

FRÉTTIR27.06.2024, 11:30

Nacho til Al-Qadsiah (Staðfest)

Spænski varnarmaðurinn Nacho Fernandez hefur gengið í raðir Al-Qadsiah í Sádi-Arabíu eftir að hafa verið á mála hjá spænska stórveldinu Real Madrid í 23 ár.

FRÉTTIR27.06.2024, 10:11

Brynjólfur til Groningen (Staðfest) - „Gott að vera kominn aftur í grænt“

Groningen í Hollandi hefur kynnt Brynjólf Willumsson sem nýjan leikmann félagsins en hann kemur frá frá Kristiansund í Noregi. Brynjólfur hefur skrifað þriggja ára samning hjá Groningen en hann fylgir í fótspor bróður síns með því að fara til Hollands. Willum Þór Willumsson leikur með Go Ahead Eagles. Brynjólfur, sem er 23 ára gamall framherji, hefur leikið með Kristiansund í Noregi frá 2021 en þar áður var hann hjá Breiðabliki. Á samfélagsmiðlum Groningen segir hann góða tilfinningu að fara aftur í grænt, sama lit og uppeldisfélag hans á Íslandi spilar í. <i>„Ég hef horft mikið á hollenskan fótbolta síðustu ár, meðal annars vegna bróður míns. Ég hef góða tilfinningu fyrir hollensku deildinni. Groningen er stórt félag sem spilar á flottum leikvangi. Ég er ánægður með þetta skref og hlakka til,"</i> segir Brynjólfur. Hann segir það auðvelda hlutina fyrir foreldra sína að þeir bræður spili í sama landinu. <i>„Í Noregi þurftu þau oft að taka auka flug til að sjá mig spila fótbolta og þess vegna völdu þau oft frekar að fara til Hollands."</i> Groningen komst upp úr B-deildinni á síðasta tímabili og leikur því í deild þeirra bestu í Hollandi á komandi tímabili.

FRÉTTIR26.06.2024, 08:40

Belotti kominn til Como (Staðfest)

Como leikur í efstu deild ítalska boltans í fyrsta sinn í 21 ár og var það enginn annar en Cesc Fábregas sem stýrði liðinu upp um deild, þrátt fyrir að vera ekki kominn með þjálfararéttindi frá UEFA.

FRÉTTIR25.06.2024, 14:00

Nottingham Forest krækir í efnilegan Þjóðverja (Staðfest)

Nottingham Forest hefur gengið frá kaupum á Eric da Silva Moreira en hann kemur frá St. Pauli í Þýskalandi. Þessi efnilegi kantmaður, sem er fæddur árið 2006, hefur varið síðustu níu árum hjá St. Pauli en fer núna yfir til Englands.

FRÉTTIR25.06.2024, 13:00

Ashley Young framlengir við Everton (Staðfest)

Hinn síungi Ashley Young hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við Everton. Þetta staðfesti enska félagið í morgun. Fjallað var um það í síðasta mánuði að Young væri með samningstilboð á borðinu og nú er hann búinn að skrifa undir.

FRÉTTIR25.06.2024, 11:14

Hólmbert Aron yfirgefur Holstein Kiel (Staðfest)

Þýska félagið Holstein Kiel hefur gefið það út að sóknarmaðurinn Hólmbert Aron Friðjónsson verði ekki áfram hjá félaginu á næstu leiktíð. Samningur Hólmberts við félagið rennur út núna í lok mánaðarins og mun hann þá róa á önnur mið.

FRÉTTIR24.06.2024, 20:20

Frá Southampton til Betis (Staðfest)

Real Betis hefur gengið frá kaupum á franska vinstri bakverðinum Romain Perraud en hann kemur til félagsins frá Southampton.

FRÉTTIR23.06.2024, 12:16

Aston Villa kaupir Dobbin (Staðfest)

Lewis Dobbin er genginn í raðir Aston Villa frá Everton en kaupverðið er óuppgefið. Dobbin er kantmaður sem talinn er kosta um 9 milljónir punda. Dobbin er 21 árs gamall enskur vængmaður sem hefur leikið með yngri landsliðunum. Hann á að baki 20 leiki fyrir Everton og skoraði í þeim eitt mark. Það mark skoraði hann í sigri gegn Chelsea í desember.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.