Ítalska félagið Atalanta hefur fest kaup á enska varnarmanninum Ben Godfrey frá Everton.
Viðræður félagana gengu hratt fyrir sig og líklega af þeirri ástæðu að Everton hafði frest til sunnudags til að selja leikmenn til að standast fjárhagsreglur ensku úrvalsdeildarinnar.
Everton samþykkti um 10 milljóna punda tilboð Atalanta í Godfreyr sem vildi ólmur komast í ítalska boltann.
Hann gekkst undir læknisskoðun í morgun og skrifaði í kjölfarið undir langtímasamning við félagið.
Godfrey er 26 ára gamall varnarmaður spilaði 93 leiki með Everton en áður lék hann með Norwich City, Shrewsbury Town og York City.
Benvenuto a Bergamo, @BenG0dfrey! ??????????
— Atalanta B.C. (@Atalanta_BC) June 28, 2024
Welcome to Bergamo, Benjamin #Godfrey! ??????????#GoAtalantaGo pic.twitter.com/NOh7nVmirK
Athugasemdir