Nottingham Forest hefur gengið frá kaupum á Eric da Silva Moreira en hann kemur frá St. Pauli í Þýskalandi.
Þessi efnilegi kantmaður, sem er fæddur árið 2006, hefur varið síðustu níu árum hjá St. Pauli en fer núna yfir til Englands.
Þessi efnilegi kantmaður, sem er fæddur árið 2006, hefur varið síðustu níu árum hjá St. Pauli en fer núna yfir til Englands.
Hann skrifar undir fjögurra ára samning við Nottingham Forest. Talið er að kaupverðið sé 1,5 milljón evra.
„Ég er mjög ánægður að vera hérna. Ég hef heyrt mikið um ensku úrvalsdeildina og félögin sem spila í deildinni. Nottingham Forest er félag með sterka hefð," segir leikmaðurinn.
Moreira, sem spilaði fyrir U17 landslið Þýskalands, lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið St. Pauli á síðustu leiktíð og hjálpaði liðinu að komast upp í þýsku úrvalsdeildina á nýjan leik.
Athugasemdir