Fotbolti.net
29.06.24 - 10:07
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea kaupir efnilegan leikmann frá Aston Villa (Staðfest)

Chelsea kaupir efnilegan leikmann frá Aston Villa (Staðfest)
Canon

Mynd: Chelsea

Chelsea gekk í dag frá kaupum á hinum 18 ára gamla Omari Kellyman en hann kemur frá Aston Villa.
Kellyman kemur upprunalega úr akademíu Derby County en hann samdi við Aston Villa árið 2022.

Unai Emery, stjóri Villa, gaf Kellyman tækifærið í Evrópuleik gegn Hibernian í ágúst á síðasta ári og spilaði Englendingurinn sex leiki í heildina það tímabilið, meðal annars gegn Crystal Palace og Manchester City.

Chelsea hefur nú gengið frá kaupum á þessum efnilega leikmanni en hann skrifaði í dag undir sex ára samning við félagið. Kaupverðið er talið nema um 19 milljónum punda.

Kellyman er fastamaður í U19 ára landsliði Englands en hann hefur einnig spilað fyrir yngri landslið Norður-Írlands.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.