Fotbolti.net
25.06.24 - 22:57
Ívan Guðjón Baldursson

Jack Harrison lánaður aftur til Everton (Staðfest)

Jack Harrison lánaður aftur til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kantmaðurinn Jack Harrison mun leika með Everton á komandi tímabili eftir að félagið tryggði sér hann á lánssamningi frá Leeds United.
Þetta verður annað tímabilið í röð sem Harrison spilar á láni hjá Everton en hann átti erfitt uppdráttar á síðustu leiktíð.

Þjálfarateymi Everton hefur miklar mætur á Harrison, þó að hann hafi aðeins komið að 7 mörkum í 35 leikjum með liðinu.

Harrison er 27 ára gamall og er samningsbundinn Leeds næstu fjögur árin. Everton fær ekki kaupmöguleika með lánssamningnum.

Jack Harrison lánaður aftur til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.