Fotbolti.net
28.06.24 - 20:32
Brynjar Ingi Erluson

Ian Maatsen til Aston Villa (Staðfest)

Ian Maatsen

Ian Maatsen

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur gengið frá kaupum á hollenska vinstri bakverðinum Ian Maatsen fyrir um 37,5 milljónir punda en hann kemur til félagsins frá Chelsea.
Maatsen, sem er 22 ára gamall, var á láni hjá Borussia Dortmund á síðasta tímabili og var valinn í lið ársins í Meistaradeild Evrópu er Dortmund fór alla leið í úrslitaleikinn.

Chelsea var meira en reiðubuið til þess að leyfa honum að fara frá félaginu. Dortmund vildi halda honum en Aston Villa hafði betur í þeirri baráttu.

Félögin náðu samkomulagi um kaup og sölu á Maatsen, sem kemur til Aston Villa fyrir 37,5 milljónir punda. Hann gerði sex ára samning við Villa í dag.

Maatsen er staddur með hollenska landsliðinu á Evrópumótinu í Þýskalandi.

Þetta eru önnur kaup Unai Emery í sumarglugganum og má búast við frekari fregnum af leikmannakaupum hjá félaginu á næstu dögum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.