Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24421 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR12.06.2024, 10:12

Priske tekinn við af Arne Slot (Staðfest)

Feyenoord hefur gert þriggja ára samning við Brian Priske um að taka við sem þjálfari liðsins. Priske kemur frá Sparta Prag í Tékklandi og tekur við af Arne Slot sem var ráðinn til Liverpool í síðasta mánuði. Priske er fyrrum varnrmaður sem hefur unnið titla á síðustu árum sem þjálfari Sparta Prag.

FRÉTTIR12.06.2024, 09:38

Sesko búinn að gera nýjan samning við Leipzig (Staðfest)

Slóvenski sóknarmaðurinn Benjamin Sesko er búinn að skrifa undir nýjan samning við RB Leipzig. Þessi 21 árs leikmaður var sterklega orðaður við Arsenal og þá var einnig talið að Chelsea og Manchester United hefðu áhuga. Sesko kom til þýska liðsins frá RB Salzburg 2023 og gerði þá fimm ára samning sem innihélt 55 milljóna punda riftunarákvæði. Þessi hávaxni leikmaður skoraði 14 mörk í 31 leik á fyrsta tímabili og hefur nú gert samning til 2029.

FRÉTTIR12.06.2024, 06:00

Forson til Monza (Staðfest)

<p>Omari Forson hefur yfirgefið Manchester United og er genginn til liðs við ítalska félagið Monza.</p>

FRÉTTIR11.06.2024, 12:00

Miroslav Klose tekur við Nurnberg (Staðfest)

Miroslav Klose, markahæsti fótboltamaður í sögu þýska landsliðsins, hefur verið ráðinn stjóri Nurnberg. Nurnberg er stórt félag í Þýskalandi en liðið leikur núna í B-deildinni.

FRÉTTIR10.06.2024, 12:48

Óskar Hrafn ráðinn til KR (Staðfest)

KR tilkynnti rétt í þessu að félagið væri búið að ráða Óskar Hrafn Þorvaldsson til starfa hjá knattspyrnudeild félagsins. Hann hefur strax störf en verður í hlutastarfi fyrstu vikurnar þar sem hann verður í öðrum verkefnum annars staðar. Í tilkynningu félagsins kemur fram að Óskar muni veita þjálfurum og starfsmönnum knattspyrnudeildar faglega ráðgjöf og vinna að endurskipulagningu deildarinnar. Óskar er uppalinn KR-ingur, var leikmaður liðsins á sínum tíma, þjálfaði yngri flokka þar og er stuðningsmaður félagsins.

FRÉTTIR07.06.2024, 17:30

Einn úr meistaraliðinu 2016 yfirgefur Leicester (Staðfest)

Fyrr í dag var greint frá því að Jamie Vardy hefði framlengt samning sinn við Leicester. Nú hefur verið greint frá því að Jannik Vestergaard hafi sömuleiðis gert það. Vestergaard er danskur miðvörður sem fékk ekki mörg tækifæri þegar liðið var í úrvalsdeildinni en var í stóru hlutverki í vetur. Á sama tíma var greint frá því að þeir Marc Albrighton, Kelechi Iheanacho og Denis Praet væru allir farnir frá félaginu en samningar þeirra renna út í lok mánaðar.

FRÉTTIR07.06.2024, 15:30

Vardy tekur slaginn með Leicester í úrvalsdeildinni (Staðfest) - „Aldur er bara tala"

Jamie Vardy hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum viið Leicester. Vardy skoraði 20 mörk fyrir liðið á liðnu tímabili og hjálpaði því að komast aftur upp í úrvalsdeildina. <i>„Ég er hæstánægður að hafa náð þessum tölum 37 ára gamall, en ég er ekki búinn. Ég hugsa vel um mig. Ég hef alltaf sagt að aldur sé bara tala. Fæturnir eru fínir og ég held áfram þar til þeir segja að þetta sé búið. Sá dagur mun koma, en hefur ekki komið ennþá,"</I> sagði framherjinn við undirskrift.

FRÉTTIR07.06.2024, 14:00

Robbie Keane hættur með Maccabi (Staðfest)

Fyrrum leikmaður Liverpool, Tottenham og landsliðsfyrirliði Írlands, Robbie Keane, er hættur sem þjálfari Maccabi Tel Aviv eftir eitt ár í starfi þar. Hann gerði liðið að ísraelskum meisturum í síðasta mánuði og kom liðinu í 16-liða úrslit Sambandsdeildarinnar í vetur eftir að hafa m.a. unnið tvo leiki á móti Breiðabliki.

FRÉTTIR07.06.2024, 10:09

Andri Lucas til Gent (Staðfest)

Belgíska félagið Gent tilkynnti rétt í þessu að Andri Lucas Guðjohnen væri orðinn leikmaður félagsins. Andri er keyptur frá Lyngby þar sem hann lék í vetur og fær Lyngby metupphæð fyrir íslenska landsliðsframherjann. Gent greiðir um 3 milljónir evra fyrir Andra. Andri Lucas er 22 ára og tók silfurskóinn í dönsku deildinni. Hann var tíu mánuði hjá Lyngby sem græddi rækilega á Íslendingnum. Hann skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2028. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Gent kaupir í glugganum. Hann mun feta fótspor föður síns, Eiðs Smára og afa, Arnórs, með því að spila í belgísku deildinni. Andri átti frábært tímabil með Lyngby, skoraði 15 mörk í 33 leikjum og var markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu. Hann verður númer 9 hjá Gent, fær þá treyju frá Momodou Sonko sem fær treyju númer 11.

FRÉTTIR07.06.2024, 09:29

Tosin Adarabioyo til Chelsea (Staðfest)

Chelsea hefur fengið varnarmanninn Tosin Adarabioyo frá Chelsea á frjálsri sölu. Þessi 26 ára hávaxni miðvörður gerir fjögurra ára samning við Chelsea. Chelsea tryggði sér sæti í Sambandsdeildinni á liðinni leiktíð. Tosin var í akademíu Manchester City á sínum tíma og hann hafnaði samningstilboði frá Fulham sem hefði gert hann að einum launahæsta leikmanni félagsins. Enskir fjölmiðlar segja Manchester United hafa reynt að krækja í hann á síðustu stundu en það hafi verið of seint, Tosin hafi þegar verið búinn að taka ákvörðun um að fara til Chelsea. Þá höfðu Newcastle og Atletico Madrid einnig reynt að fá hann. Koma hans til Chelsea gæti markað brotthvarf Trevoh Chalobah sem er fáanlegur til sölu í sumar og verið orðaður við Manchester United. Þá er hinn reynslumikli Thiago Silva að yfirgefa Chelsea og ganga í raðir Fluminense í Brasilíu.

FRÉTTIR07.06.2024, 06:00

Hirving Lozano til San Diego FC (Staðfest)

<p>Hirving Lozano hefur skrifað undir fjögurra ára samning við San Diego FC í MLS deildinni í Bandaríkjunum. Liðið er nýtt á nálinni og mun hefja sitt fyrsta tímabil á næsta ári.</p>

FRÉTTIR06.06.2024, 18:03

Aðstoðarmaður Postecoglou ráðinn til Birmingham (Staðfest)

<p>Chris Davies hefur verið ráðinn stjóri Birmingham sem leikur í C deild á næstu leiktíð eftir að hafa fallið úr Championship deildinni á síðustu leiktíð. </p><p>Hann skrifar undir fjögurra ára samning. Hann tekur við af Tony Mowbray tilkynnti í síðasta mánuði að hann gæti ekki haldið áfram hjá liðinu vegna veikinda.</p>

FRÉTTIR06.06.2024, 17:33

Vigfús Arnar hættur með Leikni (Staðfest)

Vigfús Arnar Jósepsson er ekki lengur þjálfari Leiknis í Breiðholti en þetta staðfestir félagið á heimasíðu sinni. Tíðindin koma í sjálfu sér ekki mikið á óvart þar sem Leiknir er á botni Lengjudeildarinnar með aðeins þrjú stig eftir sex leiki. Liðið tapaði 5-0 gegn Keflavík í gær.

FRÉTTIR06.06.2024, 13:13

VAR áfram í ensku úrvalsdeildinni (Staðfest)

Nítján af tuttugu félögum í ensku úrvalsdeildinni kusu gegn því að leggja niður notkun VAR í ensku úrvalsdeildinni. Aðeins Úlfarnir, sem komu með tillögunu, kusu með henni. Úlfarnir urðu illa fyrir barðinu á notkun VAR á liðnu tímabili og stórar ákvarðanir féllu gegn þeim.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.