FRÉTTIR19.02.2024, 17:00
Sunderland hefur látið stjórann Michael Beale taka pokann sinn. Þessi fyrrum stjóri Rangers var ráðinn þann 18. desember.
Hann skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning en entist aðeins í tvo mánuði.
Sunderland vann fjóra af tólf leikjum undir hans stjórn og tapaði fjórum af síðustu sjö Championship-leikjum, þar á meða gegn Birmingham og Huddersfield í síðustu tveimur leikjunum undir hans stjórn.
FRÉTTIR17.02.2024, 11:00
Bandaríska fótboltakonan Natalie Viggiano hefur skrifað undir hjá ÍBV og mun því leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Þetta kemur fram á <i>ÍBVSport</i>.
FRÉTTIR17.02.2024, 07:30
Sigurjón Rúnarsson hefur ákveðið að spila með Grindavík á komandi keppnistímabili eftir að hafa rift samningi sínum við félagið síðasta haust.
FRÉTTIR16.02.2024, 23:30
Þróttur Vogum er að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök í 2. deild karla þar sem liðið stefnir upp í Lengjudeildina eftir að hafa rétt misst af öðru sætinu í fyrra.
FRÉTTIR16.02.2024, 18:30
Fótboltastjórinn þaulreyndi Neil Warnock stýrir Aberdeen í skoska boltanum og var hann að krækja í góðan kunningja sinn á skammtíma samningi.
FRÉTTIR16.02.2024, 15:00
Bandaríska knattspyrnukonan Lexie Knox hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild ÍBV og mun því koma til með að spila með liðinu í Lengjudeild kvenna í sumar.
FRÉTTIR16.02.2024, 10:00
Framkvæmdaráð fótboltasambands Suður-Kóreu fór að tilmælum ráðgjafanefndar sambandsins og er búið að reka landsliðsþjálfarann Jurgen Klinsmann.
Klinsmann var í eitt ár í starfinu en hann skrifaði upphaflega undir samning út HM 2026.
FRÉTTIR15.02.2024, 18:30
<p>Marquinhos er genginn til liðs við Fluminense í Brasilíu frá Arsenal.</p>
FRÉTTIR15.02.2024, 17:00
Sjö leikmenn hafa fengið leikheimild með Kára á Akranesi en þrír þeirra fá félagaskipti úr ÍA, venslafélaginu.
Það eru Björn Darri Ásmundsson, Kristian Mar Marenarson og Máni Berg Ellertsson. Allt ungir strákar sem koma til með að fá dýrmæta reynslu hjá Kára.
FRÉTTIR15.02.2024, 12:24
Miðjumaðurinn Guðfinnur Þór Leósson er kominn heim til ÍA en hann hefur skrifað undir samning á Akranesi sem gildir út leiktíðina 2025.
FRÉTTIR15.02.2024, 10:16
Nafnarnir Arnór Daði Aðalsteinsson og Arnór Ingi Kristinsson hafa fengið félagaskipti í Leikni Reykjavík.
FRÉTTIR15.02.2024, 10:06
Þýska landsliðskonan Lena Oberdorf hefur fengið félagaskipti frá Wolfsburg yfir til Bayern München. Hún skiptir á milli tveggja bestu liða Þýskalands.
FRÉTTIR15.02.2024, 08:30
Víkingur Ólafsvík er búið að ganga frá samningi við markvörðinn Stefán Óla Hallgrímsson um að spila með liðinu í sumar.
FRÉTTIR14.02.2024, 23:20
Unnur Ýr Haraldsdóttir mun ekki leika með ÍA á komandi tímabili í Lengjudeild kvenna þar sem hún er búin að leggja takkaskóna á hilluna eftir langan og farsælan feril á Skaganum.
FRÉTTIR14.02.2024, 19:42
Brentford er búið að krækja í brasilískan framherja sem kemur úr röðum Club Brugge næsta sumar.
FRÉTTIR14.02.2024, 18:30
Fylkir er búinn að krækja sér í afar öflugan miðjumann sem mun hjálpa liðinu í Bestu deildinni í sumar eftir að hafa byrjað alla leiki í liði AaB í efstu deild danska boltans í fyrra.
FRÉTTIR14.02.2024, 12:00
Höttur/Huginn hefur fengið þá Árna Veigar Árnason og Ívar Arnbro Þórhallsson á láni frá KA.
FRÉTTIR14.02.2024, 10:22
Sóknarmaðurinn Björgvin Stefánsson hefur fengið félagaskipti yfir í Þrótt Reykjavík. Hann kemur til Þróttar frá Þrótti Vogum þar sem hann spilaði seinni hluta síðasta sumars.
FRÉTTIR13.02.2024, 13:03
Sóknarmaðurinn Hilmir Rafn Mikaelsson er genginn í raðir Kristiansund á láni frá Venezia á Ítalíu.
FRÉTTIR13.02.2024, 10:00
Bo Henriksen hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari Mainz í þýsku úrvalsdeildinni.