Fotbolti.net
14.02.24 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson

Fylkir fær bandarískan miðjumann frá Álaborg (Staðfest)

Fylkir fær bandarískan miðjumann frá Álaborg (Staðfest)
Canon

Mynd: University of Georgie Athletics Georgia Bulldogs

Hertz
Fylkir er búinn að krækja sér í afar öflugan miðjumann sem mun hjálpa liðinu í Bestu deildinni í sumar eftir að hafa byrjað alla leiki í liði AaB í efstu deild danska boltans í fyrra.
Abigail 'Abby' Boyan er 24 ára gömul og var í algjöru lykilhlutverki í sterku liði University of Georgia áður en hún skipti í danska boltann.

Hún bar fyrirliðabandið hjá háskólanum í Georgia en hríðféll svo úr dönsku deildinni með slöku liði Álaborgar.

Abby var valin besti ameríski leikmaður dönsku úrvalsdeildarinnar í fyrra og skrifar hún undir eins árs samning við Fylki í Bestu deildinni.

„Mikil eftirvænting er í Árbænum fyrir komandi sumri og með okkar nýjustu viðbót eykst spennan enn frekar. Það verður gríðarlega áhugavert að sjá Abby spreyta sig í Bestu deildinni með okkar unga og efnilega Fylkisliði," segir meðal annars í færslu frá Fylki, sem má sjá hér fyrir neðan.

Fylkir fær bandarískan miðjumann frá Álaborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.