Natalie Viggiano til ÍBV (Staðfest)

Mynd: ÍBVSPORT

Mynd: ÍBVSPORT

Bandaríska fótboltakonan Natalie Viggiano hefur skrifað undir hjá ÍBV og mun því leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Þetta kemur fram á ÍBVSport.
Viggiano, sem er 23 ára gömul, var síðast á mála hjá portúgalska úrvalsdeildarliðinu Damaiense.
Þessi öfluga fótboltakona spilaði með Wisconsin-háskólanum í Bandaríkjunum og var síðan í kjölfarið í 46. sæti í nýliðavalinu, en OL Reign, sem heitir í dag Seattle Reign, valdi hana.
Viggiano var margoft í úrtakshópum í yngri landsliðum Bandaríkjanna og þá hefur hún verið ofarlega í sóknartölfræði í háskólaboltanum síðustu árin.
Hún er nú mætt til ÍBV og hefur samið um að spila með liðinu á komandi keppnistímabili.
ÍBV féll úr Bestu deildinni síðasta haust eftir að hafa hafnað í níunda sæti í tíu liða deild.