Fotbolti.net
14.02.24 - 23:20
Ívan Guðjón Baldursson

Unnur Ýr leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Unnur Ýr á góðri stundu fyrir

Unnur Ýr á góðri stundu fyrir

Canon

Mynd: ÍA

Hertz
Unnur Ýr Haraldsdóttir mun ekki leika með ÍA á komandi tímabili í Lengjudeild kvenna þar sem hún er búin að leggja takkaskóna á hilluna eftir langan og farsælan feril á Skaganum.
Unnur steig sín fyrstu skref með meistaraflokki ÍA árið 2009, þegar hún var aðeins 15 ára gömul, og hefur síðan þá spilað 230 KSÍ-leiki með félaginu og skorað í þeim 92 mörk.

Á þessum tíma hefur Unnur einnig eignast tvö börn, en hún á þrítugsafmæli á árinu og hefur ákveðið að einbeita sér að öðrum hlutum í lífinu.

Unnur lék lykilhlutverk í liði ÍA í fyrra þar sem hún skoraði 8 mörk í 17 deildarleikjum er Skagakonur komu sér upp úr 2. deildinni.

Unnur á 18 leiki að baki í efstu deild eftir að ÍA var þar sumarið 2014.

„Unnur, takk kærlega fyrir þitt framlag til félagsins, þín verður sárt saknað af æfingum en við vonumst til þess að sjá þig í kring um félagið í framtíðinni," segir meðal annars í færslu frá knattspyrnudeild ÍA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.