Sigurjón tekur slaginn áfram með Grindavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurjón Rúnarsson hefur ákveðið að spila með Grindavík á komandi keppnistímabili eftir að hafa rift samningi sínum við félagið síðasta haust.
Sigurjón nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Grindavík til að ræða við félög í Bestu deildinni og varð því samningslaus um miðjan október. Nú eru liðnir fjórir mánuðir og hefur þessi öflugi varnarmaður ákveðið að spila áfram með Grindavík.
Sigurjón er 23 ára gamall og er hann uppalinn Grindvíkingur, með 148 keppnisleiki að baki fyrir félagið.
Hann átti frábært sumar í Lengjudeildinni í fyrra þar sem hann var fjórum sinnum valinn í lið umferðarinnar á Fótbolti.net. Markmið tímabilsins hjá Grindvíkingum var að fara upp í efstu deild en það misheppnaðist og endaði liðið um miðja Lengjudeild.
Sigurjón á tvo leiki að baki fyrir U19 landslið Íslands og var valinn í æfingahóp U21 landsliðsins fyrir nokkrum árum síðan.
Nýr samningur Sigurjóns við Grindavík rennur út eftir keppnistímabilið 2025, en í samningnum gæti verið innifalið samskonar riftunarákvæði og var í síðasta samningi.