Guðfinnur Þór snýr aftur heim í ÍA (Staðfest)

Guðfinnur Þór Leósson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðfinnur Þór Leósson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Guðfinnur Þór Leósson er kominn heim til ÍA en hann hefur skrifað undir samning á Akranesi sem gildir út leiktíðina 2025.
Guðfinnur er uppalinn í ÍA en hann hóf meistaraflokksferil sinn með Kára á Akranesi árið 2016. Hann spilaði svo einn leik með ÍA í Bestu deildinni ári síðar.
Á undanförnum árum hefur hann spilað með Kára, Víking Ólafsvík og Aftureldingu.
Í fyrra spilaði hann 19 leiki með Kára í 3. deild og skoraði átta mörk. Hann var á bekknum í liði ársins í 3. deild.
„Guðfinnur er vinnusamur og vel spilandi miðjumaður sem átti frábæra leiktíð með Kára á síðasta ári. Velkominn aftur heim," segir í tilkynningu ÍA.
ÍA spilar í Bestu deildinni í sumar eftir að hafa farið með sigur af hólmi í Lengjudeildinni á síðasta ári.