Fotbolti.net
13.02.24 - 13:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hilmir Rafn í Kristiansund (Staðfest)

Hilmir Rafn Mikaelsson.

Hilmir Rafn Mikaelsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Hilmir Rafn Mikaelsson er genginn í raðir Kristiansund á láni frá Venezia á Ítalíu.
Þessi tvítugi sóknarmaður var á láni hjá Tromsö í fyrra en Venezia kallaði hann til baka eftir að hann meiddist. Hann lék aðeins þrjá leiki fyrir félagið.

Kristiansund leikur í norsku úrvalsdeildinni í ár eftir að hafa unnið í umspili um sæti í deildinni á síðasta ári.

Brynjólfur Willumsson er leikmaður félagsins.

Hilmir, sem er uppalinn hjá Fjölni, á að baki þrjá landsleiki fyrir U21 árs landslið Íslands. Hann var keyptur til Venezia árið 2022 eftir að hafa komið fyrst um sinn á láni til félagsins. Núna er hann farinn aftur til Noregs.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.