Fotbolti.net
16.02.24 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Þróttur Vogum semur við þrjá (Staðfest)

Þróttur Vogum semur við þrjá (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur V.

Þróttur Vogum er að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök í 2. deild karla þar sem liðið stefnir upp í Lengjudeildina eftir að hafa rétt misst af öðru sætinu í fyrra.
Þorgeir Ingvarsson, fæddur 2000, skrifar undir tveggja ára samning við Þrótt eftir að hafa staðið sig vel síðasta sumar. Þorgeir er afar fjölhæfur leikmaður sem getur spilað flestar stöður á vellinum og er þekktur fyrir mikla vinnusemi og dugnað.

Þorgeir á 18 leiki að baki í næstefstu deild á Íslandi og gæti reynst mikilvægur fyrir Þróttara. Hann hefur verið hjá Magna síðustu ár og reyndi fyrir sér með Ægi í fyrra áður en hann skipti í Vogana.

Róbert William G. Bagguley er þá kominn á lánssamningi frá Njarðvík sem gildir út tímabilið, en Róbert er fæddur 2004 og þykir gríðarlega efnilegur. Hann leikur sem varnarmaður og kom við sögu í sjö leikjum með meistaraflokki Njarðvíkur í 2. deildinni sumarið 2022.

Að lokum er Franz Bergmann Heimisson, fæddur 2004, búinn að gera tveggja ára samning. Hann er fjölhæfur leikmaður sem gerði flotta hluti með Kára í 3. deildinni sumarið 2022.

Þorgeir, Róbert og Franz munu allir taka þátt í Lengjubikarnum um helgina þegar Þróttarar heimsækja KV í Vesturbæinn.
Þróttur Vogum semur við þrjá (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur V.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.