Stefán Óli færir sig til Ólafsvíkur (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ólafsvík er búið að ganga frá samningi við markvörðinn Stefán Óla Hallgrímsson um að spila með liðinu í sumar.
Stefán Óli er fæddur 2002 og var aðalmarkvörður Völsungs í 2. deildinni í fyrra. Stefán er uppalinn á Húsavík og færir sig um set til að spila með Ólafsvík, sem leikur einnig í 2. deild.
Hann lék æfingaleik með Víkingi Ó. um seinustu helgi og samdi í kjölfarið við félagið.
Stefán gerði gott tímabil í fyrra og átti stórleik þegar hann hélt hreinu í 1-0 sigri Völsungs gegn Víkingi í deildinni.
„Við bjóðum Stefán velkominn til Ólafsvíkur og væntum mikils af honum í sumar." segir meðal annars í tilkynningu frá Víkingi Ó.