Arnór Ingi og Arnór Daði í Leikni (Staðfest)

Arnór Ingi snýr aftur í Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Ingi snýr aftur í Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nafnarnir Arnór Daði Aðalsteinsson og Arnór Ingi Kristinsson hafa fengið félagaskipti í Leikni Reykjavík.
Arnór Ingi er 22 ára gamall bakvörður sem er að snúa aftur í herbúðir Leiknis eftir dvöl hjá Val. Hann lék upp yngri flokka í Stjörnunni en gekk í raðir Leiknis árið 2020.
Hann hjálpaði Leiknismönnum að komast upp í Bestu deildina og spilaði í tvö tímabil í efstu deild með liðinu áður en hann fór í Val seinni hluta sumarsins 2022. Hann spilaði þrjá keppnisleiki með Hlíðarendafélaginu.
Arnór Ingi lék á láni með Leikni í fyrra og hefur núna fengið alfarið félagaskipti í Breiðholtið aftur.
Arnór Daði er 26 ára gamall varnarmaður sem kemur úr herbúðum Fram. Hann hefur allan sinn feril leikið með Fram en breytir núna um umhverfi. Arnór Daði spilaði ekkert í fyrra og einn leik sumarið 2022, en það er spurning hversu mikið hann spilar með Leikni.

Arnór Daði Aðalsteinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð