Björgvin Stefáns skiptir yfir í Þrótt R. (Staðfest)

Björgvin í leik með KR á sínum tíma.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Björgvin í leik með KR á sínum tíma.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Björgvin Stefánsson hefur fengið félagaskipti yfir í Þrótt Reykjavík. Hann kemur til Þróttar frá Þrótti Vogum þar sem hann spilaði seinni hluta síðasta sumars.
Björgvin tók skóna fram af hillunni fyrir síðasta sumar og byrjaði hann að spila með uppeldisfélaginu Haukum. Hann kom við sögu í sjö leikjum með Haukum í 2. deild en tókst ekki að skora mark. Hann spilaði svo fimm leiki með Þrótti en skoraði ekki heldur.
Björgvin hafði ekki spilað fótbolta frá 2020 áður en hann tók skóna fram af hillunni í fyrra. Björgvin greindist með gigt í byrjun árs 2020 og hafði lítið getað beitt sér síðan þá. Hann byrjaði hins vegar á lyftæknilyfjum í september 2022 og það hafði góð áhrif á heilsu hans.
Núna er hann búinn að skipta yfir í Þrótt Reykjavík og fengið leikheimild þar. Þróttur hafnaði í áttunda sæti Lengjudeildarinnar á síðasta ári.
Björgvin spilaði síðast í Lengjudeildinni með Haukum árið 2017 og skoraði þá 14 mörk í 19 leikjum. Hann var markakóngur deildarinnar árið 2015 er hann gerði 20 mörk í 22 leikjum.