Fotbolti.net
14.02.24 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Höttur/Huginn fær tvo efnilega á láni frá KA (Staðfest)

Ívar Arnbro Þórhallsson.

Ívar Arnbro Þórhallsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Höttur/Huginn hefur fengið þá Árna Veigar Árnason og Ívar Arnbro Þórhallsson á láni frá KA.
Máni segir KA þurfa að fara í endurnýjun - „Hinir eiga ekki eftir að verða betri“
TENGT EFNI

Máni segir KA þurfa að fara í endurnýjun - „Hinir eiga ekki eftir að verða betri“

Árni Veigar lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Hetti/Hugin sumarið 2022 og spilaði svo sjö deildarleiki með liðinu í fyrra áður en hann skipti yfir í KA.

Ívar er efnilegur markvörður sem kominn með þónokkra leiki fyrir U17 landslið Íslands, auk þess að hafa verið til reynslu hjá Hammarby í Svíþjóð.

„Árni og Ívar eru virkilega spennandi leikmenn þrátt fyrir ungan aldur og verða væntanlega í stórum hlutverkum á tímabilinu," segir í tilkynningu Hattar/Hugins og er þar bætt við:

„Rétt er að nefna að Höttur/Huginn og KA gerðu með sér samstarfssamning fyrir tæpu ári síðan sem ánægja er með af hálfu beggja aðila."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.