Fotbolti.net
15.02.24 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Arsenal lánar Marquinhos til Fluminense (Staðfest)

Arsenal lánar Marquinhos til Fluminense (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Marquinhos er genginn til liðs við Fluminense í Brasilíu frá Arsenal.

Þessi tvítugi vinstri kantmaður gekk til liðs við Arsenal frá Sao Paulo sumarið 2022. Hann spilaði sex leiki með liðinu og skoraði sitt fyrsta mark í Evrópudeildinni gegn Zurich í fyrstu umferð riðlakeppninnar.

Hann fór á lán til Norwich í janúar í fyrra þar sem hann lék 11 leiki í Championship deildinni og skoraði eitt mark.

Hann fór svo á lán til Nantes í frönsku deildinni en lék aðeins þrjá leiki áður en hann var kallaður til baka í janúar. Hann hefur nú snúið aftur til Brasilíu og mun vera hjá Fluminense í heilt ár.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.