Fotbolti.net
16.02.24 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Lexie Knox til ÍBV (Staðfest)

Semur við ÍBV.

Semur við ÍBV.

Canon

Mynd: ÍBV

Bandaríska knattspyrnukonan Lexie Knox hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild ÍBV og mun því koma til með að spila með liðinu í Lengjudeild kvenna í sumar.
Lexie er 25 ára varnarmaður sem hefur leikið í Noregi, Albaníu og einnig í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.

Hún var lykilmaður í albanska liðinu Vllaznia sem tryggði sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar árið 2022 en í riðlinum lék liðið við Chelsea, PSG og Real Madrid. Á síðustu leiktíð lék hún með norska liðinu Klepp í 1. deild þar í landi.

„Knattspyrnudeildin býður Lexie velkomna til Vestmannaeyja og hlakkar til að sjá hana á vellinum á næstu vikum," segir í tilkynningu ÍBV.

ÍBV féll úr Bestu deildinni síðasta sumar en Jón Óli Daníelsson tók nýverið aftur við þjálfun liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.