Fotbolti.net
15.02.24 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kári fær tvo frá Selfossi og einn frá Val (Staðfest)

Þór Llorens Þórðarson.

Þór Llorens Þórðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sjö leikmenn hafa fengið leikheimild með Kára á Akranesi en þrír þeirra fá félagaskipti úr ÍA, venslafélaginu.

Það eru Björn Darri Ásmundsson, Kristian Mar Marenarson og Máni Berg Ellertsson. Allt ungir strákar sem koma til með að fá dýrmæta reynslu hjá Kára.
Svo koma Oskar Wasilewski og Þór Llorens Þórðarson frá Selfossi en það er mikill liðsstyrkur fyrir Kára. Þeir þekkja báðir til á Akranesi eftir að hafa áður leikið með ÍA.

Mikael Hrafn Helgason kemur til félagsins eftir að hafa leikið með Víkingi Ólafsvík undanfarin ár. Hann er uppalinn af Skaganum.

Þá hefur markvörðurinn Kristján Hjörvar Sigurkarlsson fengið félagaskipti í Kára úr Val. Kristján Hjörvar er aðeins 18 ára gamall og hefur hann varið mark 2. flokks Vals undanfarin ár.

Kári endaði í fimmta sæti 3. deildar á síðustu leiktíð en þetta er góður liðsstyrkur fyrir félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.