Búið að reka Klinsmann (Staðfest)

Suður-Kórea hefur rekið Jurgen Klinsmann.

Mynd: EPA

Framkvæmdaráð fótboltasambands Suður-Kóreu fór að tilmælum ráðgjafanefndar sambandsins og er búið að reka landsliðsþjálfarann Jurgen Klinsmann.
Klinsmann var í eitt ár í starfinu en hann skrifaði upphaflega undir samning út HM 2026.

TENGT EFNI
Leggja til að Klinsmann verði rekinn
Bið Suður-Kóreu eftir Asíubikarnum lengdist enn frekar fyrr í þessum mánuði þegar liðið tapaði óvænt gegn Jórdaníu í undanúrslitum. Biðin er þegar orðin 64 ár.
Kóreska sambandið gagnrýnir leiðtogahæfileika Klinsmann og segir að nauðsynlegt hafi verið að gera breytingar. Fjallað hefur verið um agavandamál innan leikmannahópsins.
„Klinsmann sýndi ekki þá leiðtogahæfileika sem við viljum fá frá landsliðsþjálfaranum okkar. Hann stóðst ekki kröfur um stjórn í leikjum, aga innan leikmannahópsins og starfsviðhorf," segir Chung Mong-gyu forseti fótboltasambands Suður-Kóreu.
Þá vildi Klinsmann ekki flytja til Suður-Kóreu og vann að mestu fjarvinnu frá heimili sínu í Bandaríkjunum og þótti ráðgjafanefndinni að það væri mikill löstur.