Keflavík fær þrjá leikmenn (Staðfest)
Saorla Miller, Susanna Friedrichs og Elianna Beard eru allar gengnar í raðir Keflavíkur en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24430 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Saorla Miller, Susanna Friedrichs og Elianna Beard eru allar gengnar í raðir Keflavíkur en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Tyrkneska félagið Galatasaray hefur staðfest félagaskipti tveggja leikmanna, þeirra Carlos Vinicius og Serge Aurier.
Said Benrahma er kominn á lán frá West Ham til Lyon í Frakklandi og Pablo Fornals hefur verið seldur frá enska félaginu til Real Betis á Spáni fyrir 6,8 milljónir punda. Lyon er með klásúlu um að geta keypt Benrahma, sem er 28 ára Alsíringur, alfarið í sumar.
Danska félagið Kolding tilkynnti í dag um komu Ara Leifssonar til félagsins. Ari, sem er 25 ára miðvörður, skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2026. Ari, sem er uppalinn í Fylki, kemur til Kolding frá Strömsgodset þar sem hann hefur verið síðustu fjögur tímabil. Samningur hans við norska félagið rann út og leitaði Ari annað.
Þýski varnarmaðurinn Jerome Boateng er genginn í raðir Salernitana á Ítalíu. Hann kemur þangað á frjálsri sölu.
Bakvörðurinn Davíð Ingvarsson er kominn í danska B-deildarfélagið Kolding. Hann hefur fengið félagaskipti og Karl Daníel Magnússon hjá knattspyrnudeild Breiðabliks staðfestir skipti hans við mbl.is.
Hægri bakvörðurinn Lorenz Assignon er kominn til Burnley á láni út tímabilið. Asssignon er 23 ára Frakki og kemur frá Rennes þar sem hann hefur leikið 60 leiki. „Ég hafði úr nokkrum liðum að velja en ég spjallaði við stjórann (Vincent Kompany) og vildi strax koma hingað. Þetta er besta deild í heimi og ég vil taka þátt í henni," segir Assignon. Burnley er í erfiðri stöðu í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni en það var nokkuð um hræringar á leikmannamálum félagsins á gluggadeginum í gær. Annar franskur varnarmaður, miðvörðurinn Maxime Esteve, kom á láni frá Montpellier og fyrr í glugganum hafði sóknarmaðurinn David Datro Fofana komið á láni frá Chelsea.

Andrey Santos miðjumaður Chelsea er genginn til liðs við franska liðið Strasbourg á láni út tímabilið.

Dwight Gayle hefur yfirgefið herbúðir stók en félagið komst að samkomulagi við leikmanninn að rifta samningnum.

John Fleck er genginn í raðir Blackburn frá Sheffield United á frjálsri sölu. Hann gerir samning út tímabilið.

Fulham hefur loksins staðfest að Armando Broja er genginn til liðs við félagið á láni frá Chelsea.

Nottingham Forest hefur nælt í hinn 31 árs gamla Matz Sels en hann gerur þriggja og hálfs árs samning við félagið.

Alejo Veliz er genginn til liðs við Sevilla á láni frá Tottenham.

Tyrkneski sóknarmaðurinn Enes Unal er genginn til liðs við Bournemouth á láni fyrst um sinn frá Getafe.

Aston Villa hefur staðfest komu Joe Gauci til félagsins frá ástralska liðinu Adelaide United.

Orel Mangala er genginn til liðs við Lyon frá Nottingham Forest á láni. Það er ákvæði í samningnum um að Lyon geti keypt hann í sumar.

Mason Holgate er genginn til liðs við Sheffield United á láni frá Everton.

Blackburn hefur fengið franska miðvörðinn Billy Koumetio á láni frá Liverpool út tímabilið.

Kieffer Moore er genginn til liðs við Ipswich á láni út tímabilið frá Bournemouth.

Maxime Esteve er genginn til liðs við Burnley á láni frá franska liðinu Montpellier út tímabilið.