Fotbolti.net
01.02.24 - 21:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Blackburn fær Koumetio á láni frá Liverpool (Staðfest)

Blackburn fær Koumetio á láni frá Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn hefur fengið franska miðvörðinn Billy Koumetio á láni frá Liverpool út tímabilið.

Þessi 21 árs gamli leikmaður kom við sögu í einum leik í Meistaradeildinni í desember 2020 og spilaði í einum leik í enska deildabikarnum tímabilið á eftir.

Hann hefur farið á lán til Austria Vín og USL Dunkerque sem leikur í næst efstu deild í Frakklandi.

„Þetta er í þriðja sinn sem hann er á láni hjá aðalliði svo þetta er ekki leikmaður sem er að koma bara úr varaliðsbolta. Stuðningsmennirnir munu bíða spenntir eftir að sjá hann spila," sagði Gregg Broughton yfirmaður fótboltamála hjá Blackburn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.