
Orel Mangala til Lyon (Staðfest)


Mynd: Nottingham Forest


Mynd: Nottingham Forest
Orel Mangala er genginn til liðs við Lyon frá Nottingham Forest á láni. Það er ákvæði í samningnum um að Lyon geti keypt hann í sumar.
Mangala gekk til liðs við Forest frá Stuttgart árið 2022. Hann lék 53 leiki fyrir liðið og skoraði þrjú mörk.
Hann var í liði Stuttgart sem vann sér sæti í efstu deild í Þýskalandi tímabilið 2019/20. Hann er belgískur landsliðsmaður og hefur spilað 12 leiki fyrir þjóð sína.
Lyon hefur verið í miklu basli í frönsku deildinni og situr í 16. sæti með 16 stig, jafn mörg stig og Metz sem er í sætinu fyrir ofan. Lyon fær Marseille í heimsókn um helgina.




