
Broja mættur til Fulham (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Fulham hefur loksins staðfest að Armando Broja er genginn til liðs við félagið á láni frá Chelsea.
Þessi 22 ára gamli framherji er uppalinn í herbúðum Chelsea en hann hefur verið á láni hjá Vitesse og Southampton.
Hann lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Chelsea árið 2020 og hefur spilað allt í allt 38 leiki og skorað þrjú mörk. Hann hefur komið við sögu í 13 leikjum í úrvalsdeildinni á þessari leiktíð og skorað eitt mark.
„Þetta er frábær tilfinning. Ég er hæstánægður að vera kominn hingað og get ekki beðið eftir því að fara af stað, hitta leikmennina og stjórann og spila fyrir stuðningsmennina," sagði Broja við undirskriftina.
„Stuðningsmennirnir eru alltaf í stóru hlutverki og ég get ekki beðið eftir því að fara á Craven Cottage og hitta þá. Ég mun vinna hart að mér fyrir liðið og búa til alvöru sambönd."
Deal done. ???? pic.twitter.com/lx4J0uASua
— Fulham Football Club (@FulhamFC) February 2, 2024




