Fotbolti.net
01.02.24 - 22:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Enes Unal til liðs við Bournemouth (Staðfest)

Enes Unal til liðs við Bournemouth (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Tyrkneski sóknarmaðurinn Enes Unal er genginn til liðs við Bournemouth á láni fyrst um sinn frá Getafe.

Þessi 26 ára gamli framherji hefur aðeins komið við sögu í einum leik í spænsku deildinni á þessari leiktíð. Hann gekk til liðs við spænska félagið frá Villarreal árið 2020 og spilaði 105 leiki og skoraði 36 mörk.

Bournemouth mun þurfa að kaupa hann í sumar fyrir 16.5 milljónir evra.

Unal var í herbúðum Manchester City frá 2015-2017 en spilaði ekki leik fyrir aðallið félagsins. Hann hefur leikið 32 leiki fyrir A landslið Tyrklands og skorað þrjú mörk.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.