
Ástralskur markvörður til Aston Villa (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur staðfest komu Joe Gauci til félagsins frá ástralska liðinu Adelaide United.
Þessi 23 ára gamli markvörður er í landsliðshópi Ástralíu sem mætir Suður Kóreu í átta i liða úrslitum Asíubikarsins á morgun. Hannmun koma til liðs við Aston Villa þegar Ástralía lýkur keppni í Asíubikarnum.
Hann lék sinn fyrsta leik fyrir Adelaide árið 2020 og spilaði 76 fyrir félagið á ferlinum.
Aston Villa hefur verið í leit að markverði sem er nú lokið en liðið tapaði gegn Brentford í baráttunni um íslenska landsliðsmanninn Hákon Rafn Valdimarsson.




