Benrahma til Lyon og Fornals til Real Betis (Staðfest)

Lyon er með klásúlu um að geta keypt Benrahma alfarið í sumar.

Mynd: Lyon

Said Benrahma er kominn á lán frá West Ham til Lyon í Frakklandi og Pablo Fornals hefur verið seldur frá enska félaginu til Real Betis á Spáni fyrir 6,8 milljónir punda.
Lyon er með klásúlu um að geta keypt Benrahma, sem er 28 ára Alsíringur, alfarið í sumar.

Félagaskipti beggja leikmanna voru í hættu en ekki náðist að ganga almennilega frá málum áður en glugganum var lokað í gær. Lyon var verulega ósátt við West Ham og kvartaði til FIFA.
Real Betis sagði að tæknilegir örðugleikar hjá West Ham hefðu sett strik í reikninginn varðandi kaupin á Fornals.
FIFA hefur skoðað bæði málin og heimilað skipti beggja leikmanna.
Fornals er 27 ára miðjumaður sem hefur verið hjá West Ham frá 2019 þegar hann kom frá Villarreal.

Pablo Fornals.

Mynd: EPA