Fotbolti.net
02.02.24 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Andrey Santos til Strasbourg á láni (Staðfest)

Andrey Santos til Strasbourg á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Andrey Santos miðjumaður Chelsea er genginn til liðs við franska liðið Strasbourg á láni út tímabilið.

Santos er með brasilíska landsliðinu í forkeppni fyrir Ólympíuleikana þessa stundina en fer til Frakklands um leið og því lýkur.

Chelsea kallaði hann til baka úr láni frá Nottingham Forest fyrr í þessum mánuði þar sem hann kom aðeins við sögu í tveimur leikjum.

Hann gekk til liðs við Chelsea fyrir ári síðan frá Vasco da Gama í heimalandinu fyrir 18 milljónir punda en hann var sendur á lán til Vasco da Gama tveimur mánuðum síðar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.