Fotbolti.net
02.02.24 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Dwight Gayle yfirgefur Stoke (Staðfest)

Dwight Gayle yfirgefur Stoke (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Dwight Gayle hefur yfirgefið herbúðir stók en félagið komst að samkomulagi við leikmanninn að rifta samningnum.

Gayle lék fimmtíu leiki fyrir félagið en hann gekk til liðs við Stoke frá Newcastle árið 2022. Hann skoraði aðeins þrjú mörk en hann hafði komið við sögu í 10 leikjum á þessari leiktíð án þess að skora.

„Dwight hefur verið alvöru atvinnumaður á tímanum sínum hjá Stoke City og hafði jákvæð áhrif. Við þökkum honum fyrir viðleitnina og óskum honum alls hins besta í framtíðinni," sagði Ricky Martin tæknistjóri félagsins.

Fabrizio Romano greinir frá því að Charlton, Barnsley, Derby County, Ipswich og Sheffield Wednesday vilji öll fá hann í sínar raðir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.