Fotbolti.net
01.02.24 - 23:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Matz Sels til Nottingham Forest (Staðfest)

Matz Sels til Nottingham Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Nottingham Forest hefur nælt í hinn 31 árs gamla Matz Sels en hann gerur þriggja og hálfs árs samning við félagið.

Sels er belgískur markvörður en hann kemur til liðsins frá franska liðinu Strasbourg þar sem hann var fyrirliði á þessari leiktíð.

Hann hefur reynslu úr enska boltanum en hann gekk til liðs við Newcastle árið 2016, þegar liðið var í Championship deildinni, eftir að hafa slegið í gegn hjá Gent. Hann lék 14 leiki fyrir félagið.

Hann er þriðji leikmaðurinn á eftir Giovani Reyna og Rodrigo Ribeiro sem liðið fær til sín í janúarglugganum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.